Búnaðarrit - 01.01.1904, Side 78
74
Að síðustu fór eg til Landbúnaðarfólagsins danska með*
meðmæli Búnaðarfélagsins, því að þar hafði eg hugsað mér
þrautalending mína. Eg skýrði stjórn félagsins frá ferð'
minni og skoðun minni á málinu. Eg átti þar hinni mestu
góðvild að fagna og taldi stjórn félagsins skoðun mína á
þessu atriði algerlega rétta og bauðst til að útvega mér
svo heppilegan mann sem unt væri til að gera téðar til-
raunir, er liún hefði hugsað og kynt sór málið.
Svo fékk eg skömmu seinna meðfylgjandi bréf frá II..
Hertel, skrifara félagsins, og gladdi það mig, að stjórnin
komst að sömu niðurstöðu sem eg um valið á mannin-
um, því að eg taldi það trygging þess, að það væri heppi-
legt, hvernig svo sem reyndin yrði.
Af því að Sigurður stórkaupmaður Jóhannesson er ís-
lendingur, og það er allmerkilegt, hve vel hann heflr kom-
ist áfram, vona eg, að eigi sé það misvirt, þó að eg hér
skjóti inn sögubroti um helztu æfiatriði hans.
Hann er íæddur á Hrollaugsstöðum í Hjaltastaðarsókn
í Norður-Múlasýslu 22. okt. 1842.— Það er einkennilegt,.
að skömmu fyrir næstu jói var Sigurður fluttur til Hjalta-
staðarkirkju til skírnar, en eftir messu brast á hríð. Var
Sigurður þá skilinn eftir, þar til er hríðinni linti, en þetta
leiddi til þess, að hann var 16 ár á IJjaltastað og óist upp
hjá Jóni presti og Margrétu konu hans, er þá vóru á Hjalta-
stað, og fékk hann því meiri mentun en þá gerðist. Frá
Hjaltastað fór hann 19 ára gamall að 'Úlfsstöðum í Loð-
mundarfirði, sem vinnumaður, og var þar 3 ár. Þaðan
fluttist hann til Seyðisfjarðar og vistaðist þar við verzlun
þá, er kend var við Glasgow, og var þar 4 ár. Þaðan.
tók hann sér far um haustið með seglskipi til Kaup-
mannahafnar og kom þangað í desembermánuði 1865, 2'3-
ára gamall, og var þá aleigan 60 dalir.
Þegar hann fór utan, haíði hann ekkert sérstakt mark-
mið. En af því að hann liafði eitthvað fengist við tré-
smíðar, þá fókk hann atvinnu á einni hinni lielztu tró-
smíðastofu í Kaupmannahöfn í þá daga, og var þar 8 ár.