Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 91
87
þá verður hann að selja það út á 20 aura pundið. Ef
hann kanpir gott kjöt á 24 aura pd., þá verður hann
að selja það út á 30 aura, til þess að hagnaðurinn verði
hinn sami. Þegar hann kaupir næst kjöt, miðar hann
við það, hverjar tegundir honurn gengur betur að selja
fyrir þetta ákveðna verð.
Ef hugsað er um að breyta meðferð á kjöti, bæði
hvað söltun og annað snertir, þá þaif ákveðinn maður
að standa fyrir sölunni eilendis, því að ofmikil áhætta er
að senda kjötið í smásendingum í ýmsar áttir, eigi hægt
að búast við borgun fyrir fram, heldur um leið og kjötið-
er afhent. En þessi maður verður að hafa bein í hendi..
Hann verður að þola, að dragist salan á kjötinu. Ef það
seist eigi fyrir þann tima, er þarf vegna söltunarinnar,.
þá verður hann að geta saltað það um, búið til pylsur
úr því eða á einhvern 'nátt forðað því skemdum.
Chr. Popp, kaupmaður á Sauðárkróki, drap á það við
mig í haust, að eg skyldi vinna að því við kaupmenn,.
er verzla með íslenzkt kjöt, að þeir stofnuðu félag, kæmu
upp matsölubúð og vönduðu matsöluhúsi, þar sem væri
á borðum vandað íslenzkt kjöt, ýmislega reitt, og fleiri
íslenzk matvæli. Eg hugsaði mál þetta og hreyfði því
við Chr. Havsteen kaupstjóra, er hafði reynzt mór mjög
vel og gefið mór ýmsar bendingar. Hann sagði mér,
að í kaupmannasamkundunni hefði verið rætt mikið-
og oft um þetta mál. En það hefði strandað á því,.
að álitið hefði verið, að skaði yrði að fyrirtækinu, þar
sem svo mikill sandur er fyrir af matsölubúðum og mat-
söluhúsum — og því hafa sumir eigi viljað gefa þessu
gaum. Þá er og vandi að jafna tekjum og gjöldum rétt-
látlega niður, af því að verzlunarmagn kaupmanna er svo
breytilegt. Enn frernur vandi að ákveða, hverjir kaupmenn
skyldu einkum verzla við stofnunina og eftir hverjum hlut-
föllum, þegar bæði varð að líta á vöruvöndun og verzl-
unararð. Astæður kaupmanna eru því auðskildar, en
óneitanlega væri það vel gert af þeirn að leggja eitthvað'
L