Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 102
98
Kuldinn og rakinn.
Orsakir ]>eirra og ráðin við ]>eiiii.
Eftir
<l(iu ÞorláliHNon.
Kuldinn og rakinn eru tveir gestir, sem ekki sjald-
an gera vart við sig í híbýlum manna hér á iandi og
það er vist óhætt að segja, að þeir séu hverjum manni
hvumleiðir og að menn vilja flest til vinna að losna við
þá; en þeir eru sendisveinar okkar óblíðu náttúru, fylgja
þeim iögum sem hún hetir sett þeim, koma og fara eftir
hennar boði og banni og gegna engum öðrum fyrirskip-
unum, bænum eða boðum. Eina ráðið til að hafa hemil
■á þessum vogestum er því að rannsaka þau lögmál, sem
náttúran hefir sett þeim, og þegar vór erum búnir að
brjóta þau tii mergjar og kynna oss þau til fulls, þá verð-
um vér að beita þessum lögum réttilega og gera hina ó-
boðnu gesti með því útiæga úr húsum vorum; það er
með öðrum orðum, að vér verðum að komast eftir eöli
■og orsökum kuidans og rakans, því það er eini áreiðan-
leni vegurinn til að finna ráðin við þeim. Þetta er ann-
ars algild regla í baráttu mannsins við náttúruna. Með-
an vér þekkjum ekki orsakir viðburðanna, stöndum vér
ráðalausir og getum ekki afstýrt því sem skaðlegt er og
ilt, eða framleitt það sem hagkvæmt er og gott, en þekk-
ingin á orsökunum gefur oss það vald í hendur, sem er
fyrsta skilyrðið til að geta drotnað yfir náttúrunni og
gert sér hana undirgefna, beint öflum hennar og hreyf-
ingum inn á þær brautir, sem oss eru hagkvæmar, en
frá hinum, sem eru oss skaðlegar. Náttúrunni verður
■ekki stjórnað, nema eftir órjúfanlegum lögum hennar sjálfr-
nr, og því er ómögulegt fyrir neinn að stjórna henni, nema
hann þekki þessi lög.