Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 106
102
Reaumurs hitamælir, og jafngilda hver 4 stig á honurft 5
stigum á Celsius. Hitamælirinn segir til hve heitur hlut-
urinn er, en segir ekki hve mikið af hita hluturinn geym-
ir í sér; þetta, sem kallað er hitamagn hlutarins, er
mælt í hitaeiningum, en ein hitaeining er svo mikið af
hita, sem þarf til að hita einn pott af vatni um eitt stig
á Celsius. Járnmoli, sem er 2 pd. að þyngd og 30° heit-
ur, heflr í sér geymdan helmingi meiri hita, en moli,
sem líka er 30° heitur, en að eins 1 pd. að þyngd, en
einn pottur af vatni fhann vegur um 2 pd), sem er 300,
heitur, hefir í sér níu sinnum meiri hita en járnmolinn,
sem var jafnþungur og jafn heitur; það þarf með öðrum
orðum níu sinnum meiri hita til að hita einn pott af
vatni um ln, en til að hita sömu þyngd af járni um 1°.
Hiti sá, sem ofnar, ijós og menn gefa frá sér, er nú
mældur í þessum hitaeiningum. Ofnar gefa frá sér mis-
munandi mikinn hita, eftir þvi hve vel þeir eru kyntir
og hve stórir þeir eru; sé ofn kyntur í meðallagi, er tal-
ið að liann gefl frá sér um 250 hitaeiningar á klukku-
timanum fyrir hvert ferhyrningsfet af hituðu yfirborði
ofnsins; eftir því gefur t. d. ofn, sem er 3 fet á hæð fyrir
ofan rist og 10 þmi. að þvermáli að meðaltali, hér um
bil 2000 hitaeiningar frá sér á hverjum klukkutíma, með'
því hitað yfirborð hans er um 8 ferhyrningsfet. Lampir
sem brennir einuin potti af steinolíu á 20 klukkutimum,
gefur frá sér um 500 hitaeiningar á klukkutímanum. Fuil-
orðinn maður gefur að meðaltali frá sér 100 hitaeining-
ar á klukkutíma, vinnandi maður nokkuð meira, börn
helmingi ininna.
Þessi hiti á nú fyrst og fremst að ganga í það að'
lialda loftinu inni í herberginu hiýju; ef hann fengi að
safnast fyrir inni, mundi brátt verða. fullheitt, enda of
heitt, en því er ekki að heilsa, hitinn fer vanalega út jafn-
óðum. Þar sem menn eru inni og ljós brenna, blandast
andrúmsloftið smátt og smátt kolsýru, sem menn og
skepnur anda frá sér og_kemur fram við brenslu Jjósanna;