Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 107
103
-onn fremur blandast vatnsgufa og ýms önnur efni saman
við loftið, og af ftllu þessu verður það smámsaman „bungt“-
og óhæfilegt til innöndunar, ef ekki kemur nýtt og hreint
loft utan að; þess vegna er talið að loftið í íbúðarher-
bergjum þurfi að endurnýjast algerlega að minsta kosti
einu sinni á hverjum klukkutíma, þ. e. að á hverjum
klukkutíma þurfi að koma inn í herbergið jafnstórt rúm-
mál af hreinu lofti og herbergið rúmar, og þá náttúrlega
jafnniikið af óhreinu lofti að fara út. Ilreina loftið að
utan er vanalega kaldara en herbergisloftið má vera, og
þarf þess vegna að hitna, og sá hiti, sem í það gengur,.
verður að framleiðast inni; ef gott loft og jafn hiti á að
haldast í ibúðarherbergjum, þarf þess vegna stöðugt að'
framleiðast hiti í þeim, en tilsvarandi hiti fer jafnóðum
út með skemda loftinu, sem verður að víkja fyrir hreina
loftinu.
En hitinn fer líka út úr herbergjunum á annan hátt;
veggir, gólf og loft í herberginu hitna að innan, en að-
utan eru að minsta kosti veggirnir miklu kaldaii; þeg-
ar nú innri hliðin á vegnum er heit, en sú ytri köld, þá
ieitar hitinn stanslaust út á við gegnum vegginn, og er
það kallað að hann streymi eða leiöist út gegnum vegg-
inn ; það er nefnilega einn af eiginleikum hitans, að hann
leitar ávalt þangað, sem minni hiti er fyrir, leitast við
að dreifa sér jafnt um alt það rúm, sem hann getur kom-
izt yfir. En hiti sá, sem vér framleiðum inni í herbergj-
unum, má einmitt ekki fá leyfi til að hlaupa þannig út
í buskann; það er ætlunarverk veggjanna að halda hon-
um inni, en það tekst misjafnlega, eftir því hvernig vegg-
irnir eru gerðir.
Hugsuin oss nú að hitamismunurinn úti og inni’sé
30°, t. d. að inni sé 15° hiti en úti 15° frost. Innri
hlið veggsins eða yfirborð er þá miklu heitari en ytra.
yflrborð hans, en þó er sá mismunur alt af nokkuð minni
en munurinn á lofthitanum úti og inni; á innra yflrborði
veggsins getur liitinn t. d. verið -j-11° en á ytra yfirborði