Búnaðarrit - 01.01.1904, Side 110
ÍOÖ
Jjoftrými þessarar stofu er 144 teningsálnir, og til þess
að hita það rúmrnál af hreinu lofti úr -f- 15° og upp í
-f- 15° þarf um 340 hitaeiningar.
Tölur þessar eru að vísu ekki sérlega nákvæmar eða
full-áreiðanlegar, en þó eru þær án efa svo nærri sanni,
að ýmsa lærdóma má draga út af dæminu. Fyrst sjá
um vér þá, að út um útvegginn fer tiltölulega lítið af
öllum þeim hita, sem tapast, nefnilega ekki nema milii
J/5 og V0 af þeim 1540 hitaeiningum; hér af má sjá, að
það er hvergi nærri nóg, til þess að húsin eða herberg-
in í þvi séu hiý, að útveggir hússins séu vandaðir og hlýir;
einsogdæmið sýnir, fer tiltölulega mikill hiti út um hlið-
arveggina, sem eru einföld skilrúm, og það þótt hitamis-
munurinn í stofunni og hliðarherbergjunum sé að eins
10°; væri hann meiri, sem hæglega getur komið fyrir,
mundi auðvitað missast tiltöiulega meiri hiii út um hlið-
arveggina; af þessu má sjá, að einföld slcilrúm ern al-
sendis önög til að slcilja á milli liitaðra og óhitaðra lier-
bergja. Það er enn fremur eftirtektavert, hve mikill hiti
fer út um gluggana, og er þó ekki gert ráð fyrir, að þeir
séu stórir; út um þessar 5 ferálnir fer um af öllum
hitanunr, enda er það ekkert nema einfalt glerið og glugga-
rammarnir til að innibyrgja hitann. Með því að hafa tvö-
falda. glugga má spara fullan helming af þessum hita, og
það með tiltölulega litlum tilkostnaði. Það f r einnig auð-
séð af dæminu, að einfalt gólf er ekki nógu hlýtt.
Eftirtektaverðast er samt að sjá, hve mikill hiti fer
út um veggi, glugga, gólf og loft, í sarnanburði við þann
hita, sem þarf til að hita upp hreina loftið í herbergið;
til þess að hita loftrými herbergisins um 30°, þarf að eins
rúmlega x/f) af þeim hita, sem streymir alveg tii ónýtis
út úr herberginu á hverjum klukkutíma; væri ioftinu
hleypt inn úr forstofunni, þar sem það heflr hitastigið 0°,
mundi eklci þurfa nema 170 hitaeiningar til að hita það
upp í 15°, eða 7» þeim hita, sem fer alveg af foi-
görðum. Þegar kalt er í veðri, er fólk mjög hrætt við