Búnaðarrit - 01.01.1904, Blaðsíða 111
107
að hleypa inn hreinu iofti, því að mcnn hald.v, að þá
muni allur hitinn fara ut, og ekki verða h'ft inni fyrir
kulúa; þerta.er á litlum rökurn bygt, og að minsta kosti
gerir fólk alt of mikið tir þeim kulda, sem komi inn með
loftinu að utan, en menn gæta miklu minna að hitanum,
sem tapast gegnum. einfalda giugga, einföld gólf og loft
o. s. frv., þó það sé margfalt meira og beint tap, sem
oft má fyrir byggja með tiitölulega litlum kostnaði, ef þeir
sem byggja hafa næga þekkingu á þessurn efnum, svo
þeir geti séð, hvað haganlegast er i hvert skifti og á hverj-
um stað; annars er hæt.t við að menn beri óþarflega mik*
ið i sumstaðar, en spari óskynsamlega annarsstaðar, og
má víst með sanni segja, að þrð sé algengt hér landi,
að minsta kosti hvað giuggana snertir; og gólfln mega
víst teijast með í því sambandi. Hugsum oss t. d. port-
bygða haðstofu uppi í sveit hér: veggirnir eru þykkir
torfveggir, svo þykkir og hlýir, að þeir hleypa iíkiega ekki
það neinu nemur af hita gegn um sig; þakið er torf-
þak, og það er einnig sæmilega hlýtt, að minsta kosti
þegar því er haldið nokkurnveginn vel við, passað upp á
að það gisni ekki um mænirinn, o. s. frv., en gluggarn-
ir eru alt af einfaldir; auðvitað hafa menn tekið eftir því,
að þeir eru hitaþjófar, en menn hafa ekki reynt aðráta
bót á því ineð öðru, en að gera þá svo litia, senr rnögu-
legt er —enda alt of iitla, þvi víða bera þeir alsendis ó-
nóga birtu. Það er þó tiltölulega lítill kostnaður að því,
að hafa tvöfalda glugga, sérstaklega á vetrum; á sumr-
um má taka innri gluggana frá og geyma þá; kostnað-
urinn við þetta er að minsta kosti hverfandi í saman-
burði við hagsmunina, því eins og áður var sagt, spaiast
við það fullur helmingur af þeim liita, senr fer út uin
einföldu gluggana; að liafa hlera fyiir gluggum er ekki
heldur t.íðkað hér á landi, og væri þó nokkur bót að þeim
á kvöldin og nóttunni í skammdeginu, og kostnaðurinn
enn þá minni en við tvöfalda glugga. Og svo er gólfið
í þessari baðstofu alt af einfalt, undir þvi er köld st.ota