Búnaðarrit - 01.01.1904, Side 115
111
Eftir þessum upplýsingum geta menn nú sagt sér
'Sjálfir hver ráð séu hugsanleg til að fá hlýja veggi; það
■er ekki nema um tvent að gera, annaðhvort að gera efnis-
mótstöðuna sem mesta, eða þá yfirborðsmótstöðuna. Iiið
fyira má gera með því að hafa veggina þykka (t. d. stein-
veggi), eða með því að hafa í þeim efni, sem er slæmur
liitaleiðari, svo sem tró, torf, mómylsnu, ösku o. s. frv.;
það má brúka eitt þessara efna eða íleiri saman, t. d.
hlaða torfi utan að steinvegg, troða torfi eða mómylsnu
milli þilja í timburvegg, stoppa með torfi, mómylsnu eða
ösku milli steinveggjar og þils að innanverðu o. s. frv.;
þetta miðar alt að því að auka efnismótstöðu veggjanna,
og er sumt alment notað. Hitt ráðið er að gera yfir-
■horðsmótstöðuna sem mesta, en hún verður ekki aukin
með öðru en því að gera yflrborðin mörg, þ. e. gera
vegginn tvöfaldan eða margfaldan, með loftholum á milli.
Ef einfalt milliþil úr 5/4 þml. borðum er ekki nógu
hlýtt, þá má náttúrlega gera það tvöfalt, ieggja annao
þil þétt upp að hinu; þá er þyktin orðin helmingi meiri
•og efnismótst.aðan þar með tvöfölduð, en yfirborðsmót-
staðan er enn sú sama, svo að öll mótstaða veggsins
hefir ekki tvöfaldast—hafi hún verið 5 áður, þá er hún
nú 8 eða því sem næst; en ef seinna þilið er ekki lagt
þétt upp að hinu, heldur haft hæfilegt bil á milli, sem
ekki þarf að vera stórt, þá tvöfaldast líka yfirborðsmót-
staðan, eða mótstaðan samanlögð er nú orðin tvöfalt
meiri en áður — eða þá vel það, því auk þess sem
millibilið gerir það að verkum, að yfirborðin verða 4 í
staðinn fyrir 2, þá er lika loítið inni i millibilinu í sjálfu
sér slæinur hitaleiðari, og eykur að því leyti efnismót-
Ætöðuna.
Eg hefi nú leitast við að skýra frá aðallögmálunum
íyrir útbreiðslu hitans og útrás hans úr herbérgjum og
húsum, en hef jafnframt slept að minnast á ýms atriði,
sem þó hafa nokkra þýðing; skal eg að eins nefna tvö