Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 119
115
Hrað er rakinn ?
Það er miklu auðveldara að leysa úr þessari spurn-
ingu en hinni um kuldann, en þó kemur það fyrir, að
svarað er út í hött og það jafnvel afskynsöinum mönn-
um; þeir segja máske sem svo, að raki sé það, þar sem
liiti og kuldi mætist, eða eitthvað þess háttar, som er
ekki neitt svar, því ralnnn er ratn og ekki annað, en
raka kalla menn vatnið, þegar það kemur fram innan á
veggjum eða þökum eða, innan í veggjum, gólfum og þök-
um. Þetta vatn get.ur átt sér ýmsan uppruna, eða rak-
inn getur stafað af ýmsum orsökum ; hann getur komið
úr veggjunum sjálfum, úr loftinu úti, úr jörðinni, eða úr
loftinu inni í húsinu. Eftir því hver orsök rakans er, eru
ráðin við honum mismunandi; raka af hinum þrem fyrst-
nefndu orsökum má fyrirbyggja að mestu eða öllu leyti
með réttu byggingarlagi og réttri byggingaraðferð, en til
þess að komast hjá raka úr loftinu inni, er það ekki oin-
hlítt, heldur er hann lika að nokkru leyti bundinn við
daglega notkun eða íbúð hússins. Það á ekki síður heima
urn rakann og kuldann, að fyrsta skilyrðið fyrir því að
vera laus við hann, er að þekkja eðli hans og ursakir;
þá verður hægra að flnna ráðin, en þegar menn eiga ekki
-annars kost en að þreifa sig áfram í blindni með ónógri
þekkingu. Það er víst iíka óhætt að segja, að gagnvart
rakanum stendur almenningur alveg ráðala.us; menn hafa
enga hugmynd um, hvernig á að verjast honum, og skoða
hann oft og tiðum sem einhvern húskross, sem menn
-verði að bera með þolinmæði, ef hann ré til manns send-
ur, og þó er tiltöluiega hægt að verjast honum, ef þeir
sem byggja hafa þekkingu á því að gera nauðsynlegar
ráðstafanir í þá átt, en sé það ekki gert í tíma, þ. e. um
leið og bygt er, þá er margfalt erflðara við að eiga á eftir,
og stundum ómögulegt að losna við rak&nn nema með
ærnum kostnaði.
liahi úr veggjunuiti sjálfum er ekki sjaldgæfur; hann
getur stafað af því, að efnið í veggjunum er blautt þeg-