Búnaðarrit - 01.01.1904, Blaðsíða 120
116
ar bygt er úr því, eða af því að efni veggjanna gefur frá
sér kemiskt bundið vatn. Veggjaefnið má þess vegna alls
ekki vera blautt, ef mögulegt er að hafa það þurt; torf
og hnausar í torfveggi ætti að vera svo þurt, sem haigt
er, en þess er ekki nærri ávalt gætt.. Viður, sem biúk-
aður er í timburhús, á að vera vei þur, og þar sem troð-
íð er st.oppi upp í grindina, er mjög áríðandi, að það sé
alveg þurt; stundum hafa menn fundið upp á því hér,
að stoppa timburveggi með blautum mosa og því um
líku; afleiðingarnar af slíkri fásinnu hafa líka orðið til-
finnanlegar, því fyrst og fromst hefir verið raki í húsun-
um lengi vei, þangað til stoppið loksins var orðið þurt
(ef það þá nokkurn tíma hefir þornað til fulls) og svo
hefir viðurinn strax byrjað að fúna; eg þekki dæmi til
að þannig gerðir veggir á Norðurlandi hafa ekki enzt nema
8 ár, og verið þá orðnir grautfúnir; það er þess vegna
vonandi, að enginn taki upp á þessu hér eftir. I veggj-
um steinhúsa er oft töluvert af vatni, meðan þau eru ný,
og er það vanalega óhjákvæmileg afleiðing af byggingar-
aðferðiuni, t. d. í steinsteypuveggjum; steinsteypan út-
heimtir vatn til að harðna, og tjáir ekki að spara það
um of, enda fer því fjarri að steinsmiðirnir iiérna geri
það, því þeir ausa vanalega miklu meira vatni í steyp-
una en þörf er á eða gott er; séu veggirnir hlaðnir úr
steyptum steinum, kemst maður hjá þessu vatni að mestu
leyti, því steinarnir er eru þá orðnir harðir og geta vei -
ið þurir þeger þeir eru iagðir í vegginn, svo vatn þarf
ekki að vera nema í steinlíminu, sem steinarnir eru lagð-
ir í. Veggir úr tígulsteini, sem eru múraðir með kaiki,
gefa frá sér tiltölulega mikið vatn, meðan þeir eru nýir;
mikið af því kemur úr kalkinu, því þegar það harðn-
ar gefur það frá sér kemiskt bundið vatn, en auk þess
er mikið af vatni í steinlíminu; tígulsteinshús eru þess
vegna alls ekki byggileg meðan þau eru ný, ekki fyr en
veggirnir eru orðnir nokkurn veginn þurir; sé brúkað se-
ment í steinlímið í staðinn fyrir kalk, þorna veggimir