Búnaðarrit - 01.01.1904, Síða 124
120
að það ráð só ©inhlítt; áreiðanlegt ráð gegn þessum raka
er að hafa vegginn tvöfaldan, og hafa op eða vindaugu
gegn um ytri part veggsins ofan til og neðan til ; þá
stendur alt af stroka af lofti inn gegnum neðri vindaug-
un, upp gegnum holið og út um efri vindaugun, og sá
loftstraumur þurkar iafnóðum allan þann raka, sem kann
að komast inn gegnum ytri part veggsins; þess ber þó
að gæta, að ytri partur veggsins getur ekki talizt með
veggnum upp á hlýindi að gera, þegar vindaugun eru
opin; hann er þá að eins til að hlífa innri veggnum fyrir
vatni, en só vindaugunum lokað, er hann líka til skjóls.
Annað ráð við rakanum að utan er að strjúka vegginn
utan með einhverju efni, sem myndar vatnshelda húð
yzt á veggnum; það má t. d. fernisera veggina eða olíu-
mála hann, og fleira má gera, sem hefir sömu verkun,
en það er mismunandi hvað við á, eftir því úr hverju
veggurinn er. Timburveggir eru vatnsheldir, efþeireru
pappaklæddir og járnvarðir að u'tan eins og nú er algengt
á Suðurlandi, og fyrirskipað er í hinni nýju byggingar-
samþykt Reykjavíkur, en norðanlands er algengt að hafa
að eins einfalda klæðningu utan á grind, og hún getur
tæplega orðið vatnshefd; fyrst og fremst drekkur viður-
inn sjálfur í sig vatn, nema málning sé því betri og
henni sé haldið vel við, og i öðru lagi læsir vatnið sig
inn um samskeytin milli bórðanna, þegar regn og storm-
ur stendur upp á, og það þó klæðning sé plægð; skal
eg í sambandi við þetta skýra frá athugunum húseiganda
eins á Akureyri*) viðvíkjandi svoleiðis klæðningu: Húsið
var bygt um sumar og tvímálað fyrir haustið; undir máln-
ingu var húsið rækilega ferniserað; klæðningin var
úr 1” þykkum plægðmn, norskum borðum, sem voru
lögð lárétt utau á grindina (liggjaudi klæðuing); smíðið
var vandað og tapp;« nærfelt hvergi brotnir. Um haust-
ið var húsið fyrir ákafri rigningu af suðri með sunnan-
*) Eftir upplýsingum frá Guðm. liéraðslækni Hannessyni.