Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 128
124
an kjallaravegginn; rakinn kemst þá aldrei lengra inn
en í holið.
Rakinn úr veggjunum, rakinn að utan og rakinn að
neðan eiga sammerkt í því, að það er tiltölulega hægt
að íyrirbyggja þá, ef ráðstafanir þær, sem nauðsynlegar
eru og drepið hefir verið á hér að framan, eru gerðar
í tíma, þ. e. um leið og húsin eru bygð; þesskonar
raki á alls ekki að geta átt sér stað í velbygðum hús-
um; auðvitað kosta þessar nauðsynlegu ráðstafanir venju-
lega nokkuð, en oftast mun það vinnast upp, og meir
en það, með þvi að húsin verða endingarbetri; við sum
byggingarefni getur líka verið erfitt að íinna ráð sem
dugi. En mikiu erfiðara er að ráða bót á þessum raka
eftir á, ef hann hefir eklci verið fyrirbygður í byrjun;
þó hafa inenn reynt mörg ráð til þess, en sum eru
mjög kostnaðarsöm og sum hjálpa að eins í bráð; fá
ein eru verulega hagkvæm, og skal eg hér að eins nefna
eitt þeirra, sem á sérstaklega við um steinhús, en líka
má nota við önnur hús; innan við vegg þann, sem rak-
inn kemur fram á, skal gera annan vegg; hann má
vera þunnur t. d. kalkhúð á listum eða einfalt þil, en
bil á að vera milli hans og gamla veggsins, svo sem 1
þuml. að minsta kosti; inn í þetta bil skulu ganga göt
að neðan gegnum innri vegginn (fótlistann), og að ofan
þurfa líka að vera göt, sem liggja annaðhvort inn í
sama herbergið eða upp á næsta loft. Loftið leikur þá
um millibilið og þurkar það, svo að minsta kosti kemst
enginn raki að innri veggnum, en auðvitað er sami rak-
inn í ytri veggnum eins og áður, en ef til vill er hann
ekki til neinna skemda. Yið veggi, sem eru kalkfágaðir
að innan, er líka gott að strjúka asfalti á vegginn undir
kalkhúðina.
Rakinn að iunan er þó máske algengari og að minsta
kosti erfiðari viðfangs en allur sá raki, sem hér hefir
verið talað um ; rakinn að innan kemur fram við það,