Búnaðarrit - 01.01.1904, Síða 129
125
að vatnsgufan í loftinu inni í húsunum þéttist, verður að
vatni, sem safnast á kalda veggi.
í andrúmsloftinu er vanalega mikið af vatnsgufu, en
þó mismunandi; því heitara sem loftið er, því meiri vatns-
gufu getur það tekið á móti og leynt i sér, án þess að
vór verðum hennar varir.
Þegar hitinn er: .... -f-100, -í-5°, 0°, 5°, 10°, 15°, 20°,
getur hver teningsalin
geymtísér:............. 0.57, 0.85,1.2,1.7,2.3, 3.2, 4.2
grömm af vatnsguíu; venjulega inniheldur loftið þó ekki eins
mikið af vatnsgufu og það gœti gert, eftir því hitastigi, sem
það hefir; 15°heitt loft getur innihaldið 3.2 grömm af vatns-
gufu í hverri teningsalin, en venjulega inniheldur það minna.
Til þess að mæla, hve mikið sé af vatnsgufu í loftinu, hafa
menn rakamœJa, sem sýna rakastig loftsins, þ. e. þeir
sýna hve mikinn hluta loftið hefir í sér af þeirri vatns-
gufu, sem það á sáma tíma gæti haft í sér, ef það
væri mettað ; só t. d. hitinn 15° og standi rakamælirinn
á o.5, þá inniheldur hver teningsalin helminginn af þeim
3.2 grömmum, sem í mesta lagi geta verið í 15° heitu lofti.
Ef loft, sem er mettað með vatnsgufu, er hitað upp,
án þess að meiri vatnsgufa komi saman við það, þá er
það ekki lengur mettað, eða þegar búið er að hita það,
getur það tekið í sig meiri vatnsgufu; só t. d. 0° heitt
loft, sem er mettað og eftir því inniheldur 1.2 grömrn
af vatnsgufu í hverrí teningsalin, hitað upp í 15°, þá get-
ur það tekið á móti 2 grömmum af vatnsgufu í viðbót
fyrir hverja teningsalin, því 15° heitt loft getur, eins og
áður er sagt, haft í sór alls 3.2 grömrn af gufu í hverri
teningsalin. Af þessu leiðir það, að þegar köldu lofti er
hleypt inn í herbergi, og það er hitað upp þar, þá getur
það tekið í sig nokkuð af þeirri vatnsgufu, sem kann að
myndast í herberginu, með öðrum orðum, það getur þurk-
að herbergið og þá hluti, sem í því eru. En ef 15° heitt
loft, sem er mettað með vatnsgufu, kólnar niður í 0°,
þá gefur hver teningsalin af því fi á sér 2 grömm af vatns-