Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 130
126
gufu, því í 15°.hpita loftinu voru 3.2 grömm, en 0° heita
loftið getur ekki haldið í sér nema 1.2 grammi; þessi 2
grömm, sem umfram verða, þéttast og verða að 2 grfimm-
um af vaini, sem sezt á veggina og þá hluti, sem inni
eru. Hugsum oss, að herbergið sé íi X 6 élnir í horn og
4 áinir á hæð; rúmmái þess er þá 144 teningsálnir og
alt luitið inni gefur þá frá sér 288 grömm eða meira en
hálfan pott af vatni. Það færi því ekki vel, ef loftið inni
væri alt af mettað með vatnsgufu, því hvað lítið sem
kólnaði, nrundi strax koma rigning í smáum stýl inni,
en það viil nú svo vel til, að loftið inni er sjaldnast mett-
að, þó því berist alt af mikil vatnsgufa.
Menn og skepnur gefa frá sér vatnsgufu bæði við
andardráttinn og út gegnum hörundið (húðgufun), og það
er talið, að fuliorðinn maður gefi frá sér alls 35 grömm
af vatnsgufu á hverjum klukkutima að meðaitali, en börn
um 15 grömin, þó er þetta auðvitað mismunandi; þeg-
ar farið er með vatn, frainleiðist líka töluverð vatnsgufa,
einkum ef vatn’ið er heitt (kaffl, matur o. s. frv.) og þá
sérstaklega í eldhúsum og þvottahúsum. Öll þessi vatns-
gufa fer út í ioftið í herberginu, og það er því bersýni-
legt, að ef saina loftið héldist, inni, mundi það bráðlega
mettast af gufunni; þegar það væri orðið mettað, mundi
öll sú gufa, sem framleiddist inni, jafnharðan breytast í
vatn, og í hvert skifti, sem eitthvað kólnaðiinni, mundi
koma fram töluvert af vatni, og þetta vatn mundi sýna
sig sem raki. Þess vegna er það alveg nauðsynlegt, að
gufumettaða loftið fari út smámsaman, og nýtt loft komi
inn í þess stað; þetta nýja og hreina loft má ekki inni-*
halda mjög mikla vatnsgufu, og það er maður viss um
að það gerir ekki, ef það er kalt, því eins og áður var
sagt, inniheldur kalt loft tiltölulega litla vatnsgufu, þó það
sé mettað, og auk þess or loftið úti sjaidnast mettað;
þegar það er komið inn, (eða áður en þvi er hleypt inn),
verður það að hitna, til þess að hitinn i herberginu geti
haldist jafn, og þegar það er orðið heitt, getur það tekið