Búnaðarrit - 01.01.1904, Side 131
127
■á móti töluverðri vatnsgufu; sömuleiðis tekur það á móti
kolsýru og öðrum óhreinindum, sem framleiðast inni, og
• á sínum tíma fer það svo út aftur með vatnsgufuna og
óhreinindin, og nýtt loft kemur í staðinn. Það er tölu-
vert almenn trú. að kalda loftið sé rakafult, eða komi
með rakann með sér, en það er misskilningur; heita loftið,
-sem út fer, hefir rakann i sér og gefur hann frá sér þeg-
ar það kólnar; þess vegna er áríðandi að það fari út,
•og gefi rakann frá sér þar sem hann engan skq,ða getur
gert, en ekki fram í göng, inn í veggi eða á aðra staði,
þar sem rakinn getur sezt á viði og feygt þá; það er
óheppilegt að óhreina loftið fari út um rifur kring um
• ghigga og hurðir, því þá kólnar það, og er hætt við, að
það gefi frá sér nokkurt vatn áður en það er komið út;
bleytan á gluggarömmum og gluggakistum, sem allir kann-
ast við, á að nokkru leyti rót sína þangað að rekja, og
þess vegna er áríðandi að allur dyra- og gluggaumbún-
aður sé vel þéttur. Það leiðir af því, sem hér hefir verið
sagt, að fyrsta ráðið til að verjast rakanum að innan, er
að liafa nógu mikla loftumrás um herbergin, en til þess
útheimtist nokkur upphitun.
Þetta er samt ekki nóg. Hugsum oss, að 15° hiti
sé inni, en 15° kuldi úti; þá er það veggurinn, sem
skilur milli kalda loftsins úti og heita loftsins inni, og
samkvæmt því sem áður var sagt, er hann nokkru kald-
ari að innanverðu en loftið inni; hvað mikill þessi hita-
mismunur yfirborðsins og herbergisloftsins er, er undir
gerð veggsins komið; þvi „hlýrri" sem veggurinn er, þ.
e. því þykkri sem hann er, og því verri hitaleiðári sem
efnið í honum er, því minni verður hitamismunurinn að
innan (þá er yfirborðsmótstaðan minni í samanburði við
alla hitaleiðslumótstöðuna). Samt er þessi hitamismun-
ur alt af töluverður, að minsta kosti við glugga og ein-
íalda steinveggi. Hugsum oss nú, að herbergishitinn sé
15° en hitinnáinnra yfirborði útveggjanna 10°; það loft,
sem snertir vegginn, kælist þá niður í 10°, og samkvæmt