Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 137
133
fyrir meir en 160 miljónir kr. á ári. Danir hafa kunn-
að að skifta um, og ekki er gott að segjahve stórfeldar
breytingar geti orðið hjá oss næstu áratugina ef við Iærð-
um af þeim að framleiða ætíð það, sem borgar sig bezt.
Turnips sprettur hér sæmilega, eg hefl ræktað það
í mörg ár en þó aldrei i stórum stýl af því að ræktun
þess útheimtir mikla vinnu, einkum við hreinsunina, en
tei þó að ræktun þess mundi borga sig vel þar sem svo
mikið væri haft undir að það borgaði sig að eiga allar
véiar sem til vinnunnar heyra og hægt væri að nota
hestkraftinn við hreinsun landsins. Rófur eru auðvitað
■ágætt fóður, og sérstaklega tel eg nauðsynlegt að hafa
rófur á haustin tii að gefa kúm meðan þær eru milli
heys og grasa.
Eg hef því ekki getað geflð rófur að neinum mun,
og því fóðrað að eins á heyi og kraftíóðri, svo kalla eg
■einu nafni allar tegundir af olíukökum og korntegund-
um.
Næstliðið ár, sem mjólkur- og fóðurskýrslur mínar
ná yflr, frá 20. nóvember til sama tíma í haust, mjólk-
uðu kýr mínar að jafnaðartali hver um sig 1000 pund-
um meir en undanfarin ár, þegar eg fóðraði mest á heyi
og gaf með að eins eina fóðurtegund, annað hvort rúg-
mjöl eða maismjöl. Autvitað þakka eg það eigi eingöngu
•olíukökunum því heyið var sérlega gott. eftir sumarið 1902
■og kraftfóðrið var aukið að vöxtum, en mikið þakka eg
það olíukökunum, því eftir reynslu Dana mjólka kýr 60
pd. meira ef þær eru fóðraðar á 100 pd. af olíuk. í stað
100 pd. mais- eða rúgmjöls.
í haust b'áru hjá mér fjórar kýr urn og stuttu eftir
veturnætur, sem komust í 36—38 pd. á dag og hafa síð-
an, til fyrst í febrúar mjólkað 30— 36 pd, þrjár af þeim
eru nýlega keyptar úr sveit, þeir sem seldu mér þær,
sögðu mér að þær hefðu hjá þeim komist í 12—14 pt.,
ein var keypt hér úr Reykjavík hatði verið íóðruð líkt
og hjá 'mér, enda mjólkað þetta hér um bil sama áður.