Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 141
137
nauðsynlegt að halda glöggan reikning við hverja einstaka
kú, því kýrnar eru nógu reikningsglöggvar við okkur, þær
■draga það alt af í mjólk sem þeim þykir á bresta. Þær
verða að hafa það fóður sem þær geta á móti tekið og
rétt hlutföll í efnasamsetning þess, það verður að gefa
þeim það ætíð á sama tíma, fjósin þurfa að vera björt,
hlý en þó loftgóð, það er ómissandi .að hleypa hreinum
■ loftsúg um þau á hverjum degi, það þarf að haida kún-
■um vel hreinum, þær vilja láta glansa á belginn á sér,
þegar kemur íram á veturinn, en ekki vera loðnar eins
og gaddhestar, þeim þykir ógn gott að láta bursta sig með
: stífum fiskibursta, það er gaman að sjá hvað ánægjuleg-
ar þær eru þegar verið er að bursta þær, það er árið-
andi að sýna þeim gott atlæti, margur mun hafa tekið
eftir því, að ef þeim þykir eitthvað að eða þeim líður
illa þegar byrjað er að mjólka þær, þá selja þær ekki,
kippa upp hryggnum og halda i sjór mjólkinni, ef það
kemur oft fyrir, geldast þær óðum.
Mjaltirnar eru sannariega vandasamt verk, ogþyrftu
því allir húsbændur að athuga, að þær fari vel fram.
Þessu þrennu hefl. eg veitt eftirtekt að helzt hafl verið
ábótavant við mjaltirnar, fyrst að kýrnar hafl ekki verið
nógu vel hreyttar, í öðru lagi ekki mjólkaðar nógu fljótt
fyrst eftir burð, og í þriðja lagi ekki nógu vel mjólkað
framjúfrið áður en byrjað hefir verið á afturjúfrinu, kýrn-
ar svo farið að selja ver og sumar jafnvel gelzt. Allir
skyldu taka upp kreistingaraðferðina sem Búnaðarfélagið
hefir verið að kenna mönnurn, og sýnt er á spjaldinu
sem það gaf út (Góð ráð nr. 1); sú aðferð er léttari og
fljótlegri fyrir alla sem hana hafa iært ungir, mjólkin næst
betur og aðferðin er þægilegri fyrir kýrnar en gamla tog-
ið. Það rnundi heppilegt að láta jafnt drengi og stúlkur
læra þá mjaltaaðferð, það detta engir gullhringir af strák-
unum, og alt er betra að kunna en kunna ekki. Svo er
líka að breiðast út eftirmjöltunin sem kend er við Hege-
lund og líka er kend hér á landi. Bændur ættu sjálfir
10