Búnaðarrit - 01.01.1904, Side 146
Gróðrarstöðin.
Shjrsla inn árið 1903.
Eftir
Einar HelgaKon.
I. Jlatjurtir.
Síðastliðið sumar voru ræktaðar fjölda margar mat-
jurtir á Gróðrarstöðinni; allar þær sömu og undanfarið
ár og nokkrar fleiri. Sumuin þykir ef til vill, að mat-
jurtaræktin hafl verið óþarflega fjölbreytt þar, en gegn því
eru góð og gild svör: 1. Áhugi manna og þekking á
matjurtaræktinni þarf að glæðast. 2. Það þarf að fá
reynslu fyiir því, hvaða fræ helzt beri hér að bjóða til
kaups. 3. Kemendur, sem læra garðyrkju við Gróðrar-
stöðina á vorin, þurfa að kynnast eins fjölbreyttum rækt-
unaraðferðum og hægt er með góðu móti að gefa þeim
kost á. — Það er vitanlega réttmæt krafa, að lögð sé
mest áherzla á að rækta nytsömustu plönturnar, bæði af
þeim, sem notaðar eru til manneldis og skepnufóðurs,
enda liefir það verið gert og verður þeirra getið hór.
Eæktaðar voru allur sömu káltegundirnar og í fyrra,
(Búnaðarritið 17. ár, bls. 175 — 185), blómkál, hvítkál,
toppkál, blöðrukál, rauðkál, rósakál og grænkál. Hvítkál
og rósakál urðu lítils nýt, en hin uxu vel. Árangurinn
sá sami og árið áður. Bætt var við einu nýju blómkáls-
afbrigði, Non plus ultra, og reyndist það seinvaxnara en
hin tvö. Af 4 toppkáisafbrigðunum spruttu, Tidlig mai
og Bungholm first of all, bezt, en hin tvö, Yorker og
Winningstddter, minna.
Eins og undanfarin ár voru ræktaðar ýmsar spínat-
jurtir, salatjurtir og súpujurtir og þarf ekki að fara
iengra út í það í þetta sinn, en vísa í skýrsluna undan-
farið ár, en geta vil eg þess, að ársgamlar súrur spruttu