Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 155
voru í marzmánuði, mest um mánaðamótin marz og
apríl.
í Rangárvalla og Árnessýslum var og í meira lagi
snjóasamt og því Htið um útbeit frá nýjári til sumars nema
á beztu hagagöngujörðum.
í Yestmanneyjum að vanda mjög vindasamt, snjó-
koma mjög lítil, nema nokkur í marz, en regn því meira..
Úrkoma fyrstu 3 mánuðina 454 miiiimetra samtals. Frost
mjög væg; mest 9°, 8°, 7° og 5°.
Vorið var kalt um land alt og jörð greri seint. Úr-
Þingeyjarsýslu er skrifað, að tíð hret og rigningar hafi
verið um vorið; annars var það alstaðar mjög þurviðra-
samt að Vestmannaeyjum undanskildum.
í Reykjavík var alment sáð í garða 20.—30. maí;
í Dölum ekki fyr en 1.—15. júní vegna klaka.
Á ofanverðum Mýrum og Borgarfirði voru kýr á gjöf
allan mai, öðrum skepnum létti á um og undir mánaða-
mótin apríl og maí, sumstaðar þó ekki svo snemma..
Góð veðurátta í júní en alt vorið gróðurlítið. Á Gils-
bakka voru 19 frostdagar í apríl, 4 í maí, aidrei frost
um daga í júní, en næturfrost fjórum sinnum.
Við ísafjörð voru jarðbönn inn til fjarða og dala sök-
um snjóþyngsla fram undir maímánaðarlok.
Að Ströndum rak ís 16. apríl, er fór til fulls 25.
maí. Byrjaði að gróa seinast í maí.
í Eyjafirði ekki sauðgróður fyr en um Jónsmessu,.
þá var rúið geldfé.
í Múlasýsium var góð t.íð allan júní.
Á Jökuldal, Vopnafjörð og heiðarnar þar á milli,
sömuleiðis um alt Úthérað, féll aska aðfaranóttina 29. maí
og tafði hún talsvert fyrir gróðri, að öðru leyti varð eigi
vart, að hún gerði mein.
Á Suðurlandi var því nær gróðurlaust til fardaga..
í Mýrdal var kúm gefið fram í miðjan júní.
Sumarið. Sunnan og vestan lands, á öllum kaflan-
um frá Hjörleifshöfða vestur að Vestfjörðum var sumarið-