Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 163
159
hlaðafli. Haustvertíðin varð rýr vegna ógæfta. Á Borg-
arfirði og norðurfjörðunum varð afli rýr. — Vegna óþurk-
anna vai'ð fiski ekki komið í verð og var það því til-
flnnaniegra, sem verð á honum var hátt. — Síld veiddist
stutta stund í lagnet, engin í nætúr. Allmörg skip stund-
uðu reknetaveiði út.i fyrir Seyðisflrði og öfluðu vel. Á
Austfjörðum eru nú 4 hvalveiðastöðvar, veiddust ógrynn-
in öll af hvölum.
í Mýrdal var vetrarvertíð mjög rýr. Bezt aflaði eitt
skip sem gekk frá Dyrhólaey og notaði segl og er það
að sögn manna fyrsta skipið, sem gengur undir seglum
þaðan. Vorafli fremur lítill og einsvarþað í Eyjafjalla-
•sveit, en vetrarvertiðin góð þar.
Á Eyrarbakka og Stokkseyri lítil aflábrögð.
í Vestmannaeyjum ágæt vetrarvertíð, hæstu hlutir
1200, þar aí helmingur þorskur. Á vörvertíð mjög góð-
ur lönguafli, hæstu hlutir 4 — 500. Fiskiafli í sumar rýr
-og á haustvertíð enginn. Lundaveiði með rýrara móti
rsakir logna og þurka. Fýlungaveiði með bezta móti.
Verð á iiiiilendum vörum.
Vöruverð og verzlun var yfir höfuð góð. Framan af
haustinu var kjöt í lágu verði héi i Reykjavík, en hækk-
aöi þegar á leið, eu margir bændur voru þá búnir að
selja meiri .iilutann af sláturfé sínu.
Lifandi fé var sent til Englands úr Strandasýslu, Þing-
■ eyjarsýslu og Múlasýslunum. Úr Þingeyjarsýslu mun hafa
verið flutt út um 3500 fjár, þar af ailmargt veturgam-
alt. Um 4000 var flutt út af Seyðisfirði; seljendur fengu
fyrir það, að frádregnum kostnaði, 12,4 aura fyrir pundið
í iifandi þunga kindanna, áður þær fóru á skip. Ein verzl-
un þar keypti fé á fæti og gaf 11—13 aura fyrir pundið.
-Sunnmýlingar fengu 13,5 aura fyrir pundið, að frádregn-
■um kostnaði, fyrir fe, sem þeir sendu út.
Eftirspurn um ull var með meira móti.