Búnaðarrit - 01.01.1904, Side 169
165
'komið er. Hins vegar væru skólajarðirnar svo stórar og
miklar, að hægðarleikur er að hafa þar stórbúmeð fjöl-
breyttum vinnubrögðum. Hann vissi til, að Iíjörtur á
Hvanneyri og Jónas á Eiðum hefðu báðir mikinn hug á,
að koma á ýmsum breytingum og ryðja braut nýjum að-
ferðum t. d. fóðurrófnarækt, plægingum, kynbótum og
ýmsu fleiru.
Jnl. Havfiteen amtmaður kvaðst vilja taka það fram
að þar til gefnu tilefni, að það gæti ekki komið til tals,
svo sem sumir virtust hugsa sér, að stöðva nú skóla-
haldið á Hvanneyri, og byggja eigi upp skólahúsið eft.ir
brunann á síðastliðnu hausti, heldur grípa nú tækifærið
og ílytja skólann til Reykjavíkur. Hvanneyrarskólinn væri
•stofnaður í fullri samhljóðan við gildandi lög (tilsk. 12.
febr 1872, um stofnun búnaðarskóla á íslandi, og 52.gr.
tilsk. 4. maí 1872, um sveitarstjórn á íslandi); hann hefði
verið og væri haldinn samkvæmt gildandi lögum, og þar
væri kend bæði bókieg og verkleg mentun, svo sem heimt,-
að væri í tilsk. 12. febr. 1872. Skólinn væri viðurkend-
ur bæði af stjórn og þingi, og hefði styrk úr landssjóði
-til skólahaldsins; ef nú skólahúsið væri látið liggja niðri
í rústunum eftir brunann, þá væri það að ganga þvert
ofan í gildandi lög, enda væri þegar fyrir nokkru tekin
ákvörðun um að byggja upp skólahúsið og íveruhúsið, og
nauðsynlegur undirbúningur geí'ður. Svo væri til ætlast,
•að hið nýja skóia og íveruhús mundi kosta 13 — 14000
krónur. og væri það sannarlega ekki mikið, þótt aldrei
nema svo færi, að búnaðarskólinn á Hvanneyii yrði lagð-
ur niður, þá mætti eigi vera minna íveruhús, eða hús,
.-sem kæmi í bæjarhúsa stað, á þessu stærsta býli iands-
ins, þar sqiii bygðar væru hlöður, fjós og fjárhús fyrir
yfir 20000 krónur.
Að því leyti er snertir stofnun búnaðarskóla, þar
:sem eingöngu væri bókleg kensla, hvort sem skólinn væri
stpfnaður í Reykjavík, sem samt fæstum mundi geðj-
.ast að, eða annarsstaðar, þá sýndist sér, að það lægi