Búnaðarrit - 01.01.1904, Síða 185
181
sláttur, og væru nú lögin notuð til kaupa á 1 streng of
ran á torfgarð, er gjaldið 5—6 krónur á ári. Séu streng-
irnir 2 lætur nærri að girðingarefnið aðkeypta verði 20—22
auraáfaðm,þáyrðiárgjaldiðeftirefnið 8—9 krónur. Þegar
strengirnir eru 2, er torfgarðshæðin frá þrepi ætluð 33
þumi. Enn er þriðja tilbreytnin að hafa strengina þrjá.
•Garðhæðin er þá ætluð 24 þml., aðkeypta efnið verður
um 30 au. á faðminn, og árgjaldið nálægt 12 kr. Teinn-
inn undir 2 strengi er ætlaður 33 þuml., og undir 3
strengi 42 þurnl. Teinarnir verða að standa iitið eitt
þéttar þegar strengurinn er ekki nema einn. Einum streng
■er ætlað að vera (5 þuml. fyrir ofan garð, 2 strengjum
.5 og 13 þuml., og 3 strengjum 5, .11 og 21 þuml. fyrir
ofan garðinn. Sé nú bara um einn streng að ræða eða
jafnvel tvo og einhver segir, að það taki því ekki að
hafa lánsvafninga laganna fyrir slíkt smáræði, skal eg eigi
vera að þrátta við hann, þó vér nú reyndar séum svo
fátækir og smáir að hverjar 50—100 krónurnar leysa og
hinda.
í dæminu hér að ofan er miðað við óvanalega stórt
-tún, og hvað er þá þetta hræðilega gjald, sem lagt verð-
ur á jörðina fyrir hin ómetanlegu gæði að fá „fullkomna
vörn fyrir öllum búpeningi"? Er það öllu'meira en skó-
slitið við vörzluna undanfarið?
Það getur átt sitt við á hverjum staðnuin með
strengjafjöldann, og kemur þar margt til greina. Mestu
skiftir að garðurinn undir haldist gróinn og til þess þarf
hann að geta haldið í sér rakanum frá jörðinni. Að of-
an ætti garðurinn að vera kúftur og má hann vart vera
breiðari en 12 þuml., því að kindur mega ekki festa fót
uppi á garðinum, hvorugu megin, teinunum ætlað að
standa eftir miðjum garði. Vegna þess hvað garðurinn
verður að ílá mikið, vex hann mjög svo að teningsmáli
við hækkunina. Eftir nokkuð lauslegri áætlun telst mér
sennilegt, að 10 faðmar gengju í dagsverkið af lægsta
garðinum, 5 faðmar í garðinn með 2 strengjum og 3