Búnaðarrit - 01.01.1904, Blaðsíða 191
187
harpiks og fleiri efni saman við tjöruna, og er það til
mikilla bóta, því að þessi efni eru miklu staðbetri en
tjaran. Þegar asfalt er saman við tjöruna, er pappinn
kallaður asfaltpappi, og er hann betri en tjörupappi, en
raunar er ekki mikið mark takandi á nafninu einu, því
að á síðari árum er lélegur þakpappi, sem eintóm tjara
er borin í, oft kallaður asfaltpappi til þess að verða út-
gengilegri.
Þakkpappi getur verið ákaflega mismunandi að gæðum;
góður þakpappi er venjulega dýrari en lélegur, en verðið
er þó ekki óbrigðull mælikvarði fyrir gæðunum; menn
verða því að gæta vel að sér, þegar þeir kaupa pappa,.
og með nákvæmri aðgæzlu má fara töluvert nærri um
gæði hans. Helztu einkenni á góðum pappa eru þessir
Pappinn á að vera nokkuð gljáandi, því að það er merki
um að asfalt sé í hann borið; hann á að vera mjúkur
en þó þéttur í sér, og má ekki springa þó hann sé brot-
inn í fellingar eða beygður; pappírstægjurnar í honum
eiga að vera langar og seigar. Það er sórstaklega slæmt
merki, ef pappinn springur þegar hann er brotinn saman,
því að þá er pappírinn í honum slæmur, og pappinn
endist þá illa. Pappinn er að jafnaði því betri, sem hann
er þykkri, en þyktin er nokkuð óákveðin, þegar pappinn
er sandborinn. Prófa má þakpappa með því að vega
stykki af honum þurrum, láta það iiggja sólarhring í
vatni og vega það þá aftur; hafi það þá ekki þyngzt
neitt, hefir pappinn ekki drukkið vatn í sig og er þá
góður, en raunar munu vandfengnar pappategundir, sem
ekkert vatn gengur í á 24 klukkustundum.
Pappi sá, sem gengur kaupum og sölum nú á tímum,
er að vísu töluvert haldbetri gegn áhrifum veðráttunnar,
en sá pappi, sem áður var búinn til úr hrárri tjöru; en
alt um það vinnur loft og vatn á honum, og þarf því
að verja hann, ef hann á að endast sæmilega. Yanalega
er pappinn sandborinn, en eins og áður er sagt er það
*