Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 192
188
ekki nóg. Þegar búið er að leggja pappann á þak, er
þakið bikað eða strokið með samskonar tjöruefnum og
pappinn er gagndreyptur með; hrá koltjara er stundum
brúkuð, en endist illa; betra er að brúka soðna koltjöru,
en bezt þó að brætt sé saman við liana asfalt eða þvi
um líkt; þess konar samsetningar má kaupa tilbúnar,
og eru þær kallaðar þaklakk, asfaltlakk, eða nefndar öðrum
nöfnum; iíka geta menn búið þær til sjálfir, með því að
bræða. saman bik, tjöru, asfalt og þess háttar efni.
Það er ekki mikið vandaverk að búa til þakpappa
eða þaklakk, og útbúnaður sá, sem til þess þarf, er ekki
mjög kostnaðarsarnur. Einhver duglegur iðnaðarmaður
ætti að taka sig til, kynna sér vinnuna erlendis og byrja
síðan pappagerð hér; að vísu yrði að fá öll efnin frá út-
löndum — eða flest —, en það er engin frágangssök,
og væri maðurinn áreiðanlegur, gætu kaupendur átt vist
að fá jafnan ósvikna vöru, sem samsvaraði vorum þörfum.
Hér er brúkað mikið af þakpappa nú, og verður væntan-
lega brúkað meira áður en langt um iíður, svo að þetta
ætti að vera álitlegur atvinnuvegur. í sömu verksmiðju
ætti auðvitað að búa til þaklakk og límbik það, er síðar
verður getið nm.
Pappaþök geta verið með ýmsri gerð, og má telja
þessar aðaltegundir:
1. Einfalt pappaþak án iista.
2. Einfalt pappaþak á listum.
3. Tvöfalt pappaþak.
4. Tvöfalt pappaþak með torfi, eða pappatorfþak.
1. Einfalt pappaþak án lista.
Einfalt pappaþak er eitthvert hið léttasta þak, sem
hægt er að fá, og getur það stundum verið töluverður
kostur, því að sperrur og aðrir viðir mega þá vera grennri