Búnaðarrit - 01.01.1904, Blaðsíða 193
189
en ella; má oft brúka sperrur úr plönkum, þar sem yrðu
að vera sperrur úr trjánr ef þakið væri þyngra. Undir-
bygging þekjunnar er vandalaus, en ekki má gleyma að
íesta þakið með járnböndum við veggi, stafi eða bita,
því að annars er hætt við að þakið fjúki af sökum þess
hve létt það er. Þakið á helzt að vera flatt, hallinn
ekki meiri en 1 : 7^/a, rishæðin J/15 af risvíddinni, þar
sem ris er frá báðum hliðum að mæni. Þakið á að
standa út fyrir veggina, alt að llJ2 alin, eftir stærð
hússins. Ýmsir kostir fylgja því að hafa þökin flöt, svo
sem að það er hægra aðstöðu við alla vinnu á þekjunni,
og húsrúmið undir henni verður lögulegra og vistlegra;
þar að auki hefir reynzlan sýnt að pappaþök endast bezt
ef rishæðin er ekki meiri en hér segir, en vel má hún
vera minni, og munu orsakirnar til þess vera þær, að
flatt þak stendur aldrei eins þvert fyrir sólargeislunum
og rishátt þak, og hitnar þess vegna minna; bikið
rennur heldur ekki af flötu þaki, þótt það verði lint í
sólarhita, en það getur hægiega komið fyrir ef þakinu
hallar mikið.
Undir pappanum skal jafnan vera slétt súð úr 1”
eða U/4” þykkum borðum, og er bezt að hún sé plægð;
borðin í súðinni eiga helzt að liggja þvers yflr sperr-
urnar, samhliða þakskörinni og mæninum, en síður upp
og ofan á langböndum (reisifjöl). Bezt er að borðin í
súðinni séu sem mjóst, því að viðurinn gisnar alt af
meira eða minna, eftir að búið er að leggja pappann,
en því mjórri sem borðin eru, því minna gætir gisnunar-
innar á hverju einu; súðina skal negla á spenurnar með
3” nöglum, og aldrei reka nagla utar í borð en 1” til
172” frá kantinum. Áður en farið er að leggja pappann,
skal gæta þess vandlega að ekkert rusl eða óhreinindi
sé á súðinni, og hún verður að vera nokkurnveginn vel
slétt að utan; bezt er að borðin sóu hefluð lauslega, en
þó er það ekki nauðsynlegt.