Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 195
191
'unum, ef þakið stendur út fyrir gaflinn, en betra er þ»
að negla þrístrendan lista á súðina við gaflinn, tylla enda
iiverrar lengju á hlið listans og leggja síðan þakræmu
yfir listann, eins og síðar verður lýst.
Þegar búið er að leggja fyrstu lengjuna (næst þak-
skörinni), skal leggja næstu lengjuna þar fyrir ofan og
láta hana skara l1/./’ niður á fyrstu lengjuna; skarirn-i
ar skal líma saman með þablakki og troða þær þétt en
gætilega saman; síðan skal negla með pappasaum í
miðjar skarir með l1/^” millibilum eftir endilangri súð-
inni; þriðja lengjan er svo lögð á sama hátt, og svo ,
framvegis unz komið er að mæninum, þá skal byrja við
hina þakbrúnina á sama hátt. Efstu lengjurnar báðum
megin skulu ná vel yfir fyrir mænirinn; svo að hann
verði tvíþakinn (sjá 2 mynd), og skal efri skörin vita
aindan illviðraátt.
Með þessu iagi koma raðir af pappasaum eftir súð-
inni endilangri; það er mjög áríðandi að gæta þess að
allir naglarnir standi sem næst því í miðju borði, en
■ekki utarlega í borði, og allra sízt mega naglarnir i
sömu röð koma alveg í samskeytin milli borðanna, eða
svo að sumir naglarnir fái hald í öðru borðinu en sumir-
i hinu. Þegar súðin gisnar, dragast borðin saman á
þverveginn; miðja hvers borðs hggur þá óhreifð á sperr-
unum, eða því sem næst, en báðir kantar borðsins
dragast að miðjunni, og það með svo miklum krafti, að
tæplega heldur þeim nokkur negling. Standi nú pappa-
saurnur utarlega í borði, þá tekur það sauminn með
sór þegar það dregst saman, en pappinn fyigist ekki
með, og geta þá naglarnir hæglega togað pappann svo
að hann rifni út frá naglahausunum; að minnsta kosti
gisnar kringum naglana, og geta fljótt orðið svo mikil
brögð, að því að væta komist inn, og þá er þakinu hætta.
'búin. Það er einmitt þetta, sem vanalega eyðileggur
þannig gerð pappaþök, og þótt hægt sé að halda þeinx