Búnaðarrit - 01.01.1904, Blaðsíða 197
193
lagi af góðu þakbiki, sem bætir honum upp þau tjöru-
efni, sem hafa gufað upp ur honum eða vatnið hefir
uppleyst.
Ekki má bika pappaþök í frosti eða votviðrumí
frosti verður bikið þegar of þykt, og ef þakið er vott,
gengur bikið ekki í pappann. Sé þak lagt seint um
haust, er óhætt að láta það standa óbikað til næsta
vors ef pappinn er sæmilega góður. Það er misjafnt,
.hve oft þarf að bika þakið að nýju, til þess að halda
því vatnsheidu, en vanalegt er að bika í fyrsta skifti eftir
eitt eða tvö ár, en síðan á 3—4 ára fresti. Þó er bezt
að hafa aðgæzlu á þakinu, því að þá má fara nærri um
hvenær þörf ei á að bika; þegar pappinn er farinn að
verða harður og lítið eftir af seinasta biklaginu, þá er
þörf á nýju, og getur vel komið fyrir að oftar þurfi að
bika þá hlið þaksins, sem veit mót sólu, en þá sem veit
undan sólu. Það má ekki bika of rjaldan, því að þá
skemmist pappinn, þ. e. tægjurnar í honum fúna, og úr
þvi er ekki hægt að bæta með því að bika að nýju; en
það má ekki heldur bika of oft, því að þá safnast bikið
fyrir og myndar harða skán á pappanum, sem oft víll
springa. Það er ekki hægt að gefa almennar reglur fyrir
því, hve oft skuli bika, því að það er komið undir gæðum
biksins og pappans og veðrátt.unni á hverjum stað.
Einfalt pap2ut]>ak á listuin.
Hér eru pappalengjurnar lagðar upp og ofan eftir
súðinni, og randirnar negldar á lista, sem ná frá þakskör
til mænis. Lista þessa má
saga úr kvistalausum 1 x/4 ”
þykkum borðum, og skal sú
hlið listanna, sem iiggur á
súðinni, vera 2 á breidd,
en listarnir eru þristrendir
og þyktin svarar til borðþyktarinnar. 3. mynd sýnir