Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 198
194
!>vermál listanna og hvernig má saga þá úr borði. Ofur-
■lítið skal hefla af þeim köntum listanna, sem snúa frá
súðinni, svo að þeir verði ávalir ofan. Þessir listar eru
negldir á súðina með jöfnum millibilum, og er hæfilegt
að 1” skemra sé milli listanna (frá miðju til miðju) en
breidd pappalengjunnar. Bezt er að sperra sé undir
hverjum lista, og má þá negla listana með 4” nöglum,
en komi listarnir á súðina milli sperra, er bezt að negla
þá með styttri nöglurn, en heykja oddana innan á súð-
inni; séu listarnir ekki svo langir, að þeir nái frá þak-
■skör til mænis, skal gæta þess að láta stúfana mætast
á miðju borði og negla báða enda niður, en annars er
nóg að negla listana með álnar millibiium. Að neðam
verðu má annaðhvort láta listana ganga jafnt þakbrún-
inni og saga þar þvert fyrir, eða það má hefla skáflöt á
þá, þannig að þeir þynnist frá því J/2 alin fyrir ofan
skörina og niður á þakbrún. Síðan skal leggja pappa-
lengjurnar upp og ofan eftir súðinni milli lista, ogþrýsta
pappanum vel niður í krikann við hvern lista, svo að
hann liggi þar þétt að súðinni og listanunr. Lengjurnar
eru látnar ganga dálítið út fyrir þakskörina, brotnar inn
undir sig og negldar á skörina eins og sýnt er á 1. mynd.
Bezt- er að lengjurnar nái alveg þvert yfir þakið, en sé ekki
svo, skal skara þær um 3—4” þar sem þær mætast,
líma skarirnar saman með þaklakki og negla í súðina
með pappasaum með l1/^
eða 2” millibilum. Siðan
eru lagðar 4” breiðar
þakræmur úr pappa á
listana og út yfir rand-
irnar á lengjunum; skal
fyrst brjóta ræmurnar
þess að fá fellingu í þær,
þrýsta þeim síðan vel niður á listana og negla í miðjar
hliðar listanna með hausstórum galvaniseruðum
saman eftir endilöngu, til