Búnaðarrit - 01.01.1904, Síða 199
195
nöglum, og skal gæta þess að þeir naglar fái ekki hald
í súðinni, heldur í listunum einum (sjá 4. mynd, sem
sýnir þverskurð lista með þakræmu). Sé listinn skorinn
af um þvert við þakbrúnina, skal láta papparæmuna ná
dálitið út fyrir listaendann, rista það sem út af stendur
upp eftir fellingunni í miðjunni, og leggja helmingana á
víxl hvorn yfir annan niður um listaendann (stúfinn)
•og negla í enda listans eða kantinn á súðinni. Séu list-
arnir látnir þynnast niður á brúnina, þá ná pappalengj-
urnar saman með randirnar neðan til, og niðri á þak-
brúninni gn'pa þæi hvor yfir aðra; þá skal strjúka sam-
skeytin með þaklakki og leggja endann á þakræmunni
þar ofan á og iáta hana enda jafnt súðinni, en brjóta
inn af lengjunum og láta þær mynda dropskör eins og
áður er sagt.
Við gafla er bezt að negla þrístrendan lista á súð-
ina eins og 5. mynd sýnir,
•og má nota til þess renn-
inga þá, sem ganga yzt úr
toorðunum þegar þau eru
söguð sundur í lista (sjá 3.
nrynd). Yzta pappalengjan
-(sú, sem kemur næst gafl-
inum), er lögð að þessum lista, og svo er lögð þakræma
yfir listann, og þarf hún að vera lítið eitt breiðari en
hinar þakræmurnar, svo að hún nái vel niður fyrir
kantinn á gaflborðinu, eins og myndin sýnir. Stormar
og stórviðri reyna mest á þær lengjurnar, sem eru
næstar göflunum, og er það því góð regla, að hafa næst
göflunum eina eða tvær lengjur með hálfri breidd. Lengj-
urnar eru ekkí negldar nema í listana og þola þess
vegna storminn því betur sem skemra er milli þeirra,
þ. e. því mjórri sem lengjurnar eru.
Þar sem pappaþak mætir vegg, sem stendur upp
fyrir þekjuna, reykháf eða strompi, þarf sérstakan um-