Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 202
198
hið sama að segja sem um pappakak án lista. Þó má
ekki gleyma því, að áður en þakið alt er bikað, verður
að strjúka þakræmurnar á listunum rækilega með asfalti
eða þaklakki, og þá einkum randirnar, þar sem þær
ganga niður yfir pappalengjurnar; sömuleiðis skal smyrja
á öll önnur samskeyti á þakinu áður en þakið alt er
bikað. Þetta er mjög áríðandi, því að ef það er ekki
gert, má búast við að þakræmurnar geti ekki haldið
pappalengjunum nógu þétt niðri í krikunum við listanar
en ef pappinn gefur sig frá súðinni og randirnar á þak-
ræmunum gosa upp, þá kemur bráðlega leki. Enn
fremur verður að muna eftir þvi, að bikun ein dugar
ekki til þess að gera við þakið ef það hefir orðið fyrir
skemdum og er farið að leka þess vegna; ef brögð eru
að því, verður að skera stykki þvert á milli lista úr
þeirri lengjunni, sem skemd er, og láta í stað þess nýtt
stykki, 8” lengra en það sem úr var skorið, og skal
stinga efri enda þess 4” upp undir endann á efra parti
lengjunnar, en láta neðri endann ganga 4” niður yfir
neðri part lengjunnar, líma báðar skarir saman me5
þaklakki og bika síðan yfir alt saman.
Pappaþak á listum endist töluvert lengur en pappa-
þak án lista, og er orsökin til þess fyrst og fremst súr
að þegar pappinn er negldur á listana, en ekki á súð-
ina, þá gerir ekkert til þótt súðin gisni dálítið. Að
leggja pappalengjurnar upp og ofan eftir súðinni án lista,
og negla skarirnar á súðina, er alveg ófært, enda er það
aldrei gert annarsstaðar en hór á landi. Séu þökin
rétt lögð, úr sæmilega góðum efnum, og þeim haldið
skynsamlega við, geta þau enzt lengi, enda eru þau
mjög algeng erlendis, sérstaklega til sveita, og þar einkum
á peningshúsum og geymsluhúsum; þau hafa nefnilega
þrjá kosti fram yfir öll önnur vatnsheld þök:
1. Þau eru mjög létt, svo að viðir allir undir þeim
mega vera í grensta lagi.