Búnaðarrit - 01.01.1904, Síða 203
199
2. Þau mega vera mjög flöt (rislítil), svo að bæði er
hægt að fá hentugt húspiáss undir þeim, og hægt
að gera húsin mjög breið tiltölulega, án þess að'
þau verði óþarflega há.
3. Þau eru ódýrust af öllum vatnsheldum þökum.
Þessi síðasttaldi kostur er auðvitað mikilvægastur,.
því að það er líka hægt að búa til létt og rislítil, en þó
vatnsheld þök úr járni, en þau eru dýr, og það stendur
útbreiðslu þeirra í vegi víðast hvar erlendis. Einföld'
pappaþök eiga þess vegna vel við á öllum þeim húsum
til sveita, sem eru svo vönduð, að súð er á sperrum,
en þurfa þó ekki að vera sórstaklega hlý. Þar til má
nefna flest betri geymsluhús og skemmur, mjólkurskála
og fleira.
Ókostir einfaldra pappaþaka eru einkum þeir, að-
þau eru ekki nógu hlý, til þess að vistleg mannahibýli
geti verið undir þeim á vetrum, nema sörstakar ráðstaf-
anir sóu gerðar, eins og við járnþökin, (slegið innan á
sperrur og stoppað á milli), og svo hitt, að þau þurfa
stöðugt viðhald. Auðvitað er pappinn samt miklu skjól-
betri en járn. Eins og áður er sagt, þurfa þau einkum
viðhalds vegna þess að tjöruefnin gufa upp úr þeim,.
þar sem ljós og loft kernst að, en auk þess er líka fleira,
sem getur orðið þeim að grandi, svo sem gisnun súðar-
innar. Enn er eitt sem getur skemt þau, og það er
vindurinn; þeim er hætt við að fjúka, eins og áður er
sagt, en við því er auðvelt að sjá; en vindurinn getur
orðið þeim að grandi á annan hátt, einkum ef súðin er
gisin eða óplægð. Þegar blæs inn um opna glugga eða
rifur undir þekjunni, kemur loftþrýstingur að innan, sem
leitar út um súðina, um samskeyti borðanna, og við
það getur pappinn lálið undan og losnað frá súðinni;
hann legst að súðinni aftur, þegar þrýstingurinn að
innan minkar, og þó þessar hreifingar pappans séu ekki
miklar og lítið beri á þeim, þá getur þetta verið nóg