Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 205
201
•er haldið áfram unz pappalagið er búið. Því næst er
Þyrjað við aðra þakskörina að strjúka með límbikinu, og
skal biklagið vera eða V12 Þumlungs að þykt; fyrst
-er strokin ein lengjubreidd við þakbrúnina, og um leið
■og strokið er, leggur annar maður fyrstu iengju ytra
jrappalagsins gafla á milli; sú lengja skal vera með fullri
breidd, en er látin ganga um 3” út fyrir þakskörina, og
brotin þar utan um röndina á innri lengjunni, og negld
í kantinn á súðinni með
V/z” millibilum (sjá 8.
mynd). í ytra lagið á
að brúka alveg sand-
lausan pappa, ekki mjög
þykkan, og skal þrýsta
honum vel niður og
strjúka hann þjett svo að
hann límist sem bezt við
innra pappalagið. Efri
rönd lengjunnar er svo
negld í súðina, næsta lengja látin skara vel yfir nagla-
hausana og límd vandlega niður eins og sú fyrsta o. s.
frv. Þuríi að auka lengjurnar, skulu samskeytin skara
vei og helzt liggja á ská, svo að vatninu steypi af þeim.
Sé ekki hægt að fá leðurpappa í innra lagið, má.
brúka í það ósendinn pappa, eins og í ytra lagið.
Umbúnaður við reykháfa, rennur 0. s. frv. getur
verið alveg eins og á einföldum pappaþökum, nema hvað
alt á að vera svo miklu vandlegra og varanlegra, að
samsvari gæðum og endingu þaksins.
Þakið er loks bikað eins og einfalt pappaþak, og sé
bikið gott og svo þétt í sér, að það bráðni ekki í sól-
■skini, er bezt að strá engum sandi á það.
Gömul og skemd einföld pappaþök er ágætt að bæta
með því að gera úr þeim tvöföld þök. Þá skal fyrst
3íma bikaðan óvandaðan pappír (t. d. umbúð apappír) yfir
14
8. mynd.