Búnaðarrit - 01.01.1904, Blaðsíða 206
202
■011 göt og rifur; gott er a? strjúka síðan á alt þakið-
þunnu lagi af heitrí tjöru, til þess að ínýkja garnla jtapp-
ann; síðan skal strjúka með límbikinu og líma ytra.
pappalagið á, alveg eins og um nýtt þak væri að ræða.
Þetta er miklu betra og ekki dýrara en að leggja nýtt
einfalt þak.
Auk þess sem þessi tvöföldu þök endast betur, af
því að loftið vinnur ver á þeim en einföldum, og þurfa
ekki eins nákvæmt viðhald, af því að ekki kemur leki
þótt. ytra lagið skemmist dálítið, þá eru þau líka auð-
vitað skjólbetri en einföld þök, af því að þau eru þykkri,
og þau eru traustari gegn öllum utanaðkomandi áhrifum,
svo sem vindinum og gisnun súðarinnar; séu þau lögð
rétt, eins og hér hefir verið sagt fyrir, standa hvergi
naglar í gegnurn alt þakið og er því ekki eins hætt við
að leki komi kringum nagla, en auðvitað er gott að
gæta þess að naglamir standj sem næst þvi í miðjum
borðum, eins og við einföld þök.
Þessi þök hafa reynzt vel erlendis, þegar þau hafa
verið rétt lögð úr góðum efnum, og tel ég vafalaust að
eins mundi reynast hér, en athugandi er hvort þau eiga
víða við. Þau eru dýrari en einföld pappaþök, en þó
ekki nægilega skjólgóð þar sem íbúð er undir súð, nema
með sérstökum umbúnaði. Ég álít samt að á timbur-
húsum til sveita, þar sem þökin verða að vera létt og
þess vegna er ilt að brúka gróin torfþök, séu þessi þök fult
svo hentug sem járnþökin, fyrst og fremst vegna þess
að tvöfaldur pappinn með biklagi á milli er margíalt
skjólbetri en járnið, og svo vegna þess að þetta þak er
töluvert ódýrara en járnþak. Vilji menn búa undir súð,
þarf að sjálfsögðu að slá innan á sperrur, en þá hlýtur
þakið líka að verða vel hlýtt í samanburði við járnþak.
Þar sem gömul pappaþök (án lista) eru farin að bila, er
hka sjálfsagt að gera úr þeim tvöföld þök.
Þótt tvöfalda þakið haíi mikla kosti fram yflr ein-