Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 209
205
beygð út fyrir þekjubrúnina eins og myndin sýnir, og
kemur þar dropskör; má svo setja þakrennu undir drop-
skörina ef vill. Ofan á sínkplötuna er torfhaldið sett,
og má það vera l1/* þykkur borðrenningur, hér um bil
4” breiður, eða tæplega sem svarar þykt torfþaksins;
þessi borðrenningur rís á rönd á sínkplötunni og styðst
við hornjárn, sem eru lóðuð á plötuna fyrir framan
hann; neðst á torfhaldinu eru göt með svo sem 6,r
millibilum, sem vatnið getur runnið út um, og eru smá-
steinar næst götunum inn-
an við torfhaldið, til þess
að sandurinn komist ekki
út um þau. Ytra pappa-
lagið gengur ekki lengra
fram en að torfhaldinu,
og á að ná frain yfir haus-
ana á nöglum þeim, sem
sínkplatan er negld með.
Það er bezt að setja torf-
haldið upp og ganga alveg frá því áður en byrjað er að
leggja ytra pappalagið. Torfhaldið sjálft (trélistinn) á að
vera málað, bikað, eða tvístrokið með karbólíni, en samt
fúnar það, og þarf því að endurnýja það við og við; má
gera það án þess að hrófla nokkuð við umbúnaðinum
að öðru leyti. í staðinn fyrir trélista má líka brúka
torfhald úr sínki eða galvaniseruðu járni, og er það
endingarbetra.
Við gafla og þakbrúnir, sem vatnsrensii er ekki
niður af, má búa um líkt því sem sýnt er á 5. mynd:
Þrístrendur listi er negldur á röndina á súðinni, og að
honum ná bæði pappalögin, en listinn er sjálfur þakinn
með sink- eða járnplötum; hann verður náttúrlega að
vera svo hár, að hann haldi nógu vel að torfinu.
Á 11. mynd er sýndur umbúnaður um múraðan
xeykháf; sínkplata (eða járnplata) liggur utan um reyk-
10. niynd.