Búnaðarrit - 01.01.1904, Side 211
207
og svo er það mikið fremur ódýrt. Um endingu þess er
auðvitað engin reynzla hór á landi, en erlendis hefir það
reynzt ágætlega; elztu þök af þessari gerð, sem ég hefi
haft spurnir af, munu vera milli 30 og 40 ára gömul,
og þau eru alveg óskemd enn, og ekki útlit fyrir annað
en að þau endist þangað til tímans tönn er búin að vinna
á viðunum undir þeim. Það iiggur í augum uppi, að
þau munu vera mjög skjólgóð, skjólbetri en torfþök lögð
á súð án pappa, og hafa auk þess þann ómetanlega kost
fram yfir torfþök þau, sem nú tíðkast, að þau eru áreið-
anlega vatnsheld. Hvað kostnaðinum viðvíkur, þá er
hann auðvitað einkum kominn undir söiuverði á efnum
þeim, sem í þakið eru brúkuð. Þakpappi (sandlaus) mun
nú sem stendur vera s'eldur í Rvik fyrir 14—18 aura
feralinin; þetta verð má heita óeðlilega hátt í saman-
burði við verð á ýmsum öðrum byggingarefnum; það
ætti að mega fá fullgóðan pappa í tvöföld þök fyrir 12
aura feralinina; límbik mun kosta alt að 6 au. á hverja
feralin, og bik utan á ytra pappalagið um 4 au. á fer-
aiin; þetta eru tilsamans 34 au. á hverja feralin, en þar
við bætist nokkuð, sem gengur í skarir o. s. frv., og
svo saumur; þó ætti alt efnið ekki að fara fram úr
40 au. fyrir hverja feralin.
Ókost má það telja á þessu þaki, eins og hverju
■öðru torfþaki, að það er nokkuð þungt; hjá því verður
■trauðla komist, ef þakið á að verða nógu skjóigott í voru
loftslagi. Yiðir undir þakið þurfa þessvegna að vera
ámóta gildir og gólfviðir. Sperrur er ekki að tala um,
af þvi að þakið er svo rislítið, heldur er bezt að styðja
þakbitana með stoðuin (skilrúmi) og ás undir mæninum,
•eins og sýnt er á 2. mynd; þar er mænikverkin fest
'saman með járnböndum yflr mæniásnum. Ef svo stendur
■á, má líka blaða bitaendana (mænikverkina) saman.
Annan galia má ef til vill einnig nefna, sem loðir
við öil pappaþök; þau eiu alvcg loftheld. Þess vegna