Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 227
223
Só framanrituðum tamningarreglum fylgt, má roiða
■sig á að ökuhestarnir verða þægir og ötulir. Það er frá-
bær amlóðaháttur að teymahesta, sem ganga fyrir plóg
eða æki og verður sem fyrst að afleggjast. Það er og
■óhæf plægingaraðferð, sem sumstaðar er við höfð, að tveir
menn séu saman við það, annar stýri hestunum og lemji
þá áfram en hinn stýri plógnum.
Það er afsakanlegt þótt að menn, sem ekki hafa
átt kost á að kynnast réttum reglum við plægingar eða
akstur beri sig viðvaningslega að, en hitt er óafsakanlegt
að þeir, sem hafa átt kost á að venjast, réttum aðferðum
í þessu, skuli samt sem áður láta sjást til sin annan
eins klaufaskap við akstur og plægingar og ég nýlega
nefndi; en það er þó, því miður, það algengasta.
Það hefir til skamms tíma verið álitið og er enda
enn, að akstur og einkum plæging, sé svo erfið vinna fyrir
hestana, að engin önnur brúkun sé eins erfið. En fyrst
menn líta svo á það, hljóta þeir að viðurkenna, að góð
undirbúnings æfing til þessarar vinnu er óumflýjanlega
nauðsynleg fyrirhestana til þess að þeir geti afkastað Lil-
ætluðu verki.
Til þess að plæging og akstur yfir höfuð, geti fengið
almenna útbreiðslu, er eitt með fyrstu skilyrðunum það,
að hestarnir verði vel tamdir; án vel taminna hesta verð-
ur ætíð meir eða minna ólag á verkinu. Þegar menn
eru komnir á gott lag með að temja hesta sina, þá reyn-
ist auðvelt að plægja og aka og þá fyrst getur sú vinna
náð almennri útbreiðslu; en það þarf að verða sem allra
fyrst. Yfirstandandi tími gerir strangar kröfur til manna
um að nota hestafiið betur og skynsamlegar hér eftir en
hingað til, fyrst og fremst til allrar jarðyrkjuvinnu og til
ýmiskonar flutninga, bæði á heimajörðunni sjálfri og til að-
■drátta eftir flutningabrautunum.
Hestafiið er ódýrt í samanburði við mannsafiið, og
alstaðar, sem þvi verður við komið með hentugum áhöld-