Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 229
225
og fjöllunutn er mikið af ýmiskunar sjófuglum, sem eyja
búum eru svo arðberandi eins og alþekt er.
Flestar eyjarnar eru grasivaxnar ofan, i sumum úteyj-
um er slægjur og sauðfjárbeit góð, hafa bændur þar nokkuð
af fé og gengur það sjálfala árið um í kring. Telja þeir
þó vafasamt hvort sú sauðfjáreign muni borga sig; bæði
•ru vanhöld á fénu allmikil og kostnaður talsverður í
samanburði við fjárfjöldann. Það þarf að safna því til rún-
ings, sækja þangað slátursfé og flytja þangað nýtt. A-
kveðiðerað einginn einn bóndi megi hafa meira en 16
fjár í úteyjum.
Úthagar á Heimaey eru rírir heiman til, en ágætir
í fjöllunum; hver bóndi má hafa 12 kindur heima og 1
hross, og þykir eyjan vera fullsetin með því, svo að kúa-
hagar eru rírir.
Fénaðartala í eyjunum er um þessar mundir allsr:
sauðfé 1100, hross 22, kýr 53.
Bygðin er aðallega í tvennulagi, með túnum útfrá.
Jarðir 24 að tölu, bændur með grasnyt 43. Þurrabúð-
armenn margir. Hafa þeir fengið útmælt land 350—400
□ faðma undir hús sin, stakkstæði, garð o. s. frv.
Túnin eru talin að vera samtals 170 dagsláttur. Þau
líta út fyrir að vera vel hirt, eru öll girt og slétt. Áburð-
arliirðing og .nýting er þar í góðu lagi, svo að óvíða
mun betur vera til sveita. Kolum er brent, nær því ein-
göngu, eru þau drýgð með fuglaúrgangi; bökin með
vængjunum eru hert, eftir að brjóst og læri hafa verið
skorin frá. Síðastliðið ár gáfu túnin af sér 2113 töðu
hosta.
Árið 1902 voru þar matjurtagarðar samtals 16700 □
faðmar, rúmlega 18 dagslátta. Allir eru þeir afgirtir
eins og túnin. í görðunum eru nær þvi eingöngu rækt-
aðar kartöílur og gulrófur. Uppskeran síðastliðið árvar
756 tunnur af kartöflum og 503 tunnur af gulrófum.—