Búnaðarrit - 01.01.1904, Side 233
229
Skýrsla
um jarðabótavinnu í Orímsey.
í sumar ferðaðist ég til Grímseyjar fyrir Búnaðar-
félag íslands, til að leiðbeina þar bændum í búnaði og
vera verkstjóri við jarðabótavinnu hjá þeim.
Frá heimili mínu lagði ég á stað til Akureyrar 24.
júní og síðan með „Hólar" þann 25. s. m. til eyjarinnar,
og var byrjun starfsemi minnar þar ytra, að halda fund
með bændum að Miðgörðum 26. s. m. til að ræða þar
um framfaramálefni eyjarinnar, og ákveða, hvernig skyldi
hagað þeirri jarðabóta\innu, er ég áliti heppilegasta, og
bændum kæmi saman um, að vinna skyldi.
Ákveðið var, að vinna mest að túnasléttun 3 daga
á bæ, ef kringumstæður leyfðu; byrjaði því vinnan að
Básum þann 27. júní og enti í Grenivík 2. ágúst, en
þar eð þessi timi var mjög óhentugur fyrir jarðabótastörf,
því margar annir kölluðu að í einu og vinnukraftur held-
ur lítill, þá gengu allmargir dagar úr af þessum umgetna
tíma, er eigi var hægt að koma við jarðabótavimju. —
Alls var því unnið í mánaðartíma, sléttað á 9 bæjum
750 □ faðm. og hlaðinn túngarður á einum bæ, 40 faðm.
Vanalega gengu til vinnu með mér 4 menn á dag. Aðal-
áherzla var lögð á að leysa verkið sem bezt af hendi,
befa vel bæði undir og ofan á slétturnar, og einnig að
kenna mönnum rétt handtök við hvað eina.
Þá daga er eigi var hægt að vinna að jarðabótastörf-
um notaði ég, að því leyti sem hægt var, til að leiðbeina
bændum og gera tilraunir meðgarðrækt; einnig leitaði eg
eftir svarðarlandi, en árangurslaust. Eg skoðaði alt sauð-
fé á eyjunni eftir tilmælum amtmanns Páls Briem, til
að vita, livort þar fyndist fjárkláði.
Tilraunir með garðrækt gerði ég á 3 bæjum, og voru