Búnaðarrit - 01.01.1904, Side 234
230
J>að alt fljótvaxnar káltegundir, sem eg setti niður. Útlit
var fyrir, er ég fór, að á 2 bæjum myndi verða allgóð
spretta, en á þeim 3. lítil. Rabarber setti ég niður á.
flestum bæjum og virtist það taka góðum framförum.
Frá 2. ágúst, er jarðabótavinna hætti, beið ég eftir
ferð í land, og komst ^igi fyr en 6. s. m. með færeyzku
skipi til Siglufjarðar, og þaðan næsta dag til Akureyrar
og síðan tafarlaust heim.
Á sunnudögum, er hægt var, hélt ég fundi með bænd-
um til að ræða þar áhugamálefni þeirra, og' gera tillögur
um nauðsynlegustu umbætur, koma á félagslífi og glæða
hug til landbúnaðarins. Búnaðarfélag var myndað, og var
ákveðið, að það gengi inn í Landsbúnaðarfélagið.
Kerru flutti ég til eyjarinnar, sem allmikið var notuð,
og keyptu bændur hana í félagi.
í það heila tekið er að lifna áhugi hjá bændum til
landbúnaðarins, er getur verið nokkur í eyjunni. Tún
eru víðast hvar í míkiili órækt, *) áburðurinn illa hirtur,
siorinu og ösku víða fleygt í sjóinn, en alliíklegt að hér
á eftir hirði þeir áburðinn betur en verið hefir. Safn-
gryfjur lét ég búa til á allmörgum bæjum fyrir fiskúr-
gang’ og ösku, í fjörunum er mikið af vel rotnuðum þara,
sem er bezti áburður, og var í ráði að flytja hann heim
á túnin í haust, þar sem hægt væri.
Til þess að sá áhugi, sem nú er að vakna hjá eyj-
arbúum, til að rækta jörðina, geti borið ávexti, væri nauð-
synlegt, að Búnaðarfélag íslands, veitti þeim einhverjahjálp
á komandi vori, helzt með því að kosta búfræðing til
þeirra, að einhverju leyti.
Munkaþverá 28. ágúst 1904.
Ouðl. Jónsson.
*) í skýrslu um búnaðarástandið í Grímsey siðastl. ár cru
talin 12 býliá eyjunni, að hundraðatali 83.j. Framteljendur jafn-
margir og býlin. Kvikfénaður er talinn 210 kindur og 1 kýr. —
Tíinin 541/2 dagslátta alls. Taða 159 hestar, úthoy 39. Utg.