Búnaðarrit - 01.01.1904, Blaðsíða 236
232
að hægt. væri að taka hendinni um vírinn milli gaddanna,
en á hinn bóginn hefir vörnin reynst verri þegar bilið
verður meira en þetta. Bilið á milli strengja var ákveðið
eftir því sem heppilegast hefir reynst erlendis. Bilið milli
stuðla var sett eftir strengjafjölda, má vera lengst þar
sem flestir eru strengirnir. í ástæðum fyrir fumvarpi
reglugerðarinnar var talið æskilegt, gætn oddarnir á gödd-
unum verið galvaníseraðir án mikils aukakostnaðar, og
eins, að á járnteinunum væru skorur eða grópir t.il að
fosta vírinn við, • en eigi þótti ráðlegt að taka slíkt beint
upp í reglugerðina. í reglugerðinni er tekið fram, hvernig
ganga skuli frá jarðveginum, þar sem fimmstrengjuð girð-
ing er á jafnsléttu, taka burtu þúfur og fylla lautir; hinu
varð eigi komið að, en við mætti bæta bendingu hér
um það, að þar sem slík girðing liggur yfir mjög votan
og lausan jarðveg, þá verður að festa botninn undir tein-
unum með grashnausum.
Sem betur fer, er reglugerðin eigi ofþröng. Skoð-
unarmanni er ætlað meðal annars að kveða á um það,
hve margir skulu vera vírstrengirnir, þar sem garður er
hlaðinn undir. Heyrst hafa efasemdir um það, hvort
lögin næðu til girðinga með 1 eða 2 strengjum ofan á
garði, en reglugerðin gerir ráð fyrír þeim eigi síður en 3 og
4strengjum. Skoðunarmaður hefir þá með öðrum orðum
vald til að segja fyrir um liæð gai-ðsins undir strengj-
unum, og má búast við því að sitt lítist hverjum um
hæðina, og sama er að segja um lagið á görðunum,
sem skoðunarmenn verða líka að ákveða um. Stjórn
Búnaðarfélagsins lét uppi þá skoðun sína í ástæðunum
fyrir frumvarpinu, að undir 4 strengjum mundi þurfa
garð fullsíginn lö þuml. háan frá þrepi, undir 3 strengi
24 þuml. háan, undir 2 • strengi 33 þuml. háan og
undir 1 streng 40 þuml. háan frá þrepi. Um lögun garðs-
ins var það tekið fram að æskilegt væri, að garðurinn
■væri eigi hærri eða brattari en svo að hann gæti grasi