Búnaðarrit - 01.01.1904, Síða 237
233
gróið, sé liann úr torfi, sem oflar mun vera hentugast.
Eins er það tekið fram, að skoðunarmaður verði eigi
síður að líta á lögun garðsins en hæð haiis, er hann
ákveður strengjafjöldann.
Eftir að reglugerðin var samin og girðingaefnið var
nánar ákveðið með henni, leitaði landstjórnin fyrir sér
um kaup á því með augiýsingum í blöðum eriendis, því
að í 8. gr. túngirðingalaganua stendur það ákvæði, að
landstjórninni er falið að gefa ut áætlun um verðið í
faðmi hverjum í virstrengnum og á fetínu í teinum og
stóipum, að flutningskostnaði meðtöldum.
Áætlun þessi fyrir næsta ár er nú komin frá stjórn-
arráðinu og er vírfaðmurinn 4 a., og fetið í teinunum
5x/a—6x/2 e., dýrast í styztu lengdunum. í vínkilbeygðu
járnstólpunum er fetið 8 a., og í flötu stólpunum 6 aura.
Faðmurinn mun vart nokkru sinni hafa farið niður
úr 6 aurum í fjóryddum vír, með 4—5 þuml. milli
gadda. Fæstir hafa komist að svo góðum kaupum og
munar því að minsta kosti þriðjungi á aðal-girðingaefn-
inu. Geta mætti þess að Jítið eitt ódýrara er að fá vir-
inn i 100 punda rúllum; 50 punda nær c. 130 faðma.
Verðmunurinn á teinum og stóipum verður heldur
ekki minni, allra sízt gerði maður sér von um að vínkil-
beygðu stóiparnir fengjust svo ódýrir galvaníseraðir. Fetið
í vínkiljárni ógalvaníseruðu, er hingað var útvegað í sum-
ar, er selt fulla 15 aura, og vegur 0,78 pd. Og enn ei
þess að geta um teinaverðið, að gert er fyrir gróp-
um á teinunum til að festa við vírinn, jafnmörgum og
strengir eru ætlaðir á hvern tein, og færir það frám verðið
um fast að V10 í tilboðinu sern tekið var.
Það er fyrirsjáanlegt að gaddavírsgirðingar aukast
stórum ár frá ári, og væri það eigi smálítill hagnaður
fyrir landið að geta sætt slikuin kaupum. Auðvitað er
þetta verð, sem nú er sett, ekki nema fyrir næsta ár,
getur bæði hækkað og lækkað; en það er í sjálfu sér
ekki nema eðlilegt að svona miklu muni, þegar keypt er