Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 238
234
í einu stórmikið, alveg áhættulaust fyrir seljanda, alt
greitt út í hönd og engir milliliðir til að færa fram.
í auglýsingum stjórnarráðsins í erlendum blöðum var
girðingaefninu Jýst nákvæmJega, og hefir það orðið til
þess að í sumum tilboðunum koma fram athugasemdir
og aðfinslur við þessar fyrirhuguðu girðingar okkar, og
er rétt að þær birtist almenningi.
Helzta aðfinslan er sú, að sívölu teinarnir 3/8” í
þvermái séu aJtof grannir og veikir til að bera 5 streugi.
Það enda talið líklegt, að þeir muni innan langs tima
ryðga sundur niður við jörðina.
Úr hinu fyrra mætti mikið bæta með því að hafa
einn vinkilstólpa á móti 2 til 3 teinum, sem eykur sára-
iitið girðingarkostnaðinn, en styrkir girðinguna mikið.
Eftir verðiuu sem nú er, þá munaði það 14 a. á stuðl-
inum og c. 172 kr. á 100 föðmum, ef 3. hver stuðull væri
vinkíljárnstólpi. Séu aftur á móti veruleg brögð að hinu
síðarnefnda, þá duga grönnu teinarnir alls ekki. Reynslan
sýnir það nú brátt hér hjá oss, og verður þá að fá gild-
ari teina, eða hafa eingöngu vinkilstólpa eða flata. Er-
Jendis eru teinarnir líka látnir standa í jörðu og ætti þar að
vera reynt, ef þeir væru mjög endingarlausir. Annars
tel ég vist, að mest verði notaðir stuttu teinarnir, fram*
tíðargirðingin verður 1—3 strengir ofan á torígarði.
Fetið í teinunum, sem eru 3/8” i þvermál (= 10
mm.) er talið að vega 0,39 pd. Sé þvermálið haft 7s”
(= 13 mm.) er fetið sem næst hálfu þyngra eða 0,70
pd., og styrkleikinn er hálfu meiri og betur þó. í til-
efni af aðfinslunum, var spurt fyrir um verð á gildara
járni hjá þeim, er komu með einna liklegust tilboðin og
býður sú verksmiðja, sem áætlun stjórnarráðsins er miðuð
við, gildari teina, x/2 þuml. að þvermáli, fyrir sem næst
8 —10 aura fetið, eftir lengd, eða nokkuð svipað verð
og menn munu undanfarið hafa gefið fyrir grönnu teim
ana. En brot úr eyri legst svo á fetið fyrir flutningskostnaði.
í vinkiljárninu, sem boðið er í áætlun stjórnarráðs-