Búnaðarrit - 01.01.1904, Blaðsíða 242
288
og flnna þá skjótt hve torfhúsum er mikið ábótavant og-
•iive langt þau standa að baki timbur- og steinhúsum..
Fnda er slikt eðlilegt, þvi meira ganga timburhúsin og
■Meinhúsin í augun en torfhúsin, eins óásjáleg og þau hafa.
verið að jafnaði til þessa dags.
Þegar timbur- og steinhúsagerðin heldur innreið sína
í landið, þá vakna nýjar og hærri kröfur í brjóstum
landsmanna, að því er lnisagerðina snertir. Og þeir flnna
að þeir verða að tileinka sér kröfur þessar, ef þeir eiga
að teljast með siðuðum mönnum, og hlýða lögmáli menn-
ingarinnar. En þeir flnna jafnframt að toi'fhúsin íslonzku
fullnægja ekki kröfum þessum, eins og þau eru, og þá
snúa þeir við þeim bakinu. En timburhúsin og stein-
húsin bru boðberar hinnar nýju húsagerðar, er því fulL
von að þangað stefni hugur manna. Enda heflr sú raunin-
orðið á, að torfhúsin hafa jafnt og þótt lækkað í áliti,
en timbur- og steinhús að því skapi rutt sér til rúms-
og orðið í hugum manna sem fyrirmynd fyrir allri húsa-
gerð.
Nú mun svo komið skoðunum manna víða um land,
að þeir telja það nresta neyðarkost að reisa hús úr torfi,
einkum íbúðarhús; flestir keppast því við að byggja úr
timbri og steini, ef þeir sjá sér nokkurn veg til þes&
efnanna vegna. En þeir einir, sem efnin vantar, verða
að iáta sér iytida að búa í tnrfhúsunum.
Það er nú þegar farið að koma í Ijós, eftir þennan
stutta tíma, sem timbur- og steinhúsin hafa verið reynd
hór á landi, að þau eru allmiklir gallagripir, og eiga að
mörgu leyti ekki vel við vora hagi. Þau eru að jafnaði
mjög köld til íbúðar, svo eigi verður komist hjá að hita
þau upp með ofnum, ef þau eiga að vera byggileg; er
það tilfinnanlegur kostnaður t.il sveita, þar sem örðugt
er að flytja að sér eldsneyti. Ennfremur hafa þau víða
reynst rakasöm í meira lagi, jafnvel mildu rakasælli en
sum torfhúsin. Og timburhúsin hafa þar að auki reynst.
á mörgum stöðum mjög endingarlaus.