Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 245
241
og höggva, en ókleift að flytja höggvið grjót sökum
kostnaðar. Auk þess gengur mikil vinna í að höggva
grjótið, svo það verði hæft til húsagerðar. Veggir hlaðnir
úr óhöggnu grjóti og steinlímdir verða Qg afardýrir sökum,
þess hve frekir þeir verða á steiniímið. Að stevpa veggi
úr steiniimi, blönduðu með sandi og steinflísum eða möl,
verður og án efa svo dýrt, að hinir efnuðustu bændur
oinir hafa efni á að reisa hús á þennan hátt.
Tíguhteinn. Nú á síðusta stundu hefir komið til
orða að brenna mætti tígulstein hér á landí til húsa-
gerðar. En eftir öllum upplýsingum, sem fram ei u komnar
um það mál, eru líkur til að hann verði svo dýr, að
eigi verði tiltækilegt að flytja hann langar leiðir til húsa-
gerðar.
Kalk. Það hefir að vísu fundist hér, en í mjög
litlum sfýl. Er því ekki þess að vænta, að það í nokkru
verulegu létti húsagerð vora.
Þá er ótalið það af byggingarefnum vorum, sem
kunnast er og mest hefir verið reynt hér á landi. Það
.er torfið (hnaus, strengir, snidda, torf o. fl.).
Torfið er langódýrast af þeim byggingarefnum, sem
hér eru kunn og auðfengnast af þeim öllum; því tiltölu-
lega munu þeir bæir vera fáir hór á landi, að eigi megi
fá þar sæmilega gott torf til húsagerðar, ef vel er leitað.
Ennfremur er vinnan við torfið yíirleitt svo vandalítil að
bændur geta flestir komið þar að sinni eigin vinnu og
látið sér nægja sína eigin kunnáttu. Þessir kostir eru
svo þýðingariniklir, að naumast getur það húsagerðarefni
talist hentugt handa almenníngi, sem ekkt hefir þá til
að bera. En nú sem stendur er ekkert það efni fundið,
er hafl þessa kosti á jafnháu stigi. Að þessu leyti skipar
því torflð öndvegissætið. En torfið hefir aftur á móti
mikla galla, sem ekki hafa dulist almenningi; hafa þeir
orðið til þoss að eyða hylli þess á síðarí árum. Gallar
15