Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 251
247
•að nægja 3—4 þvert yfir hann. Hentugt væri að hafa
linausana að minsta kosti af tveim stærðum, svo hægt
væri að haga hleðslunni þannig að endasamskeyti hnaus-
anna ekki stæðust á í hleðslunni heldur gengju á misvixl.
Væri það til að binda veggina sem bezt. Þaðríðurmjög
á, því að hnausinn haldist vel í hieðslunni til þess að
lögin pressist vel saman, en glennist ekki sundur. Eykur
það mjög á festu veggsins.
Þegar búið er að hlaða svo sem helming af veggnum
á þennan hátt, þyrfti að bera farg á vegginn. Mætti
leggja borð eða hlera á vegginn og bera þar á grjót og
dáta það standa á hæfilega langan tíma. Að því búnu
má halda áfram hleðsiunni, unz henni er lokið. Væii
þá sjálfsagt að fei gja vegginn vel, áður en frekar er gert.
Þess skal gæta að fergja veggir.a jafnt og flytja
fargið til ef vottar fyrir missigi, Hafa skyldu menn sem
fæstar dyr á torfveggjum og glugga. Draga þeir mjög
rir stöðvun vegjanna og vilja tíðum valda missigi. Þar
■sem glugga þarf að hafa á torfvegg eða dyr, verður að
búa svo um, að þeir á engan háti geti hindrað sig veggj-
anna eða valdið missigi.
Grindin. Undirgrind hyggjum vér að heppilegast
«é að sleppa i torfhúsum, þar sem veggirnir eru vand-
■aðir, en láta heldur yfirgrindina og þakið hvíla á vegyj-
unum sjálfum. Heppilegast teldi eg það vera að hafa
skáþak (skúrþak) og hafa það svo hallalitið sem má.
Þegar búið er að fergja veggina og jafna þá vel að ofar.,
má byrja að leggja á grindina. Hugsum vér oss að það
verði gert á þenna hátt: Fyrst skulu teknnr slár eins
langar og veggirnir eru breiðir. Skulu þær lagðar þvers
um á veggína með hæfilegu millibili. Slár þessar ætti
að móta ofan í vegginn og gæta þess vel að þær Jiggi lárétt.
Því næst vegglægjur lagðar eftir veggjunum endilöngum
og þess vandlega gætt, að þær hvíli á miðjum voggslánum,
sem áður eru nofndar. Þá skulu tekin tré, sem ná yfir
þvera tóttina. Skulu þau höfð hæfiiega mörg og end-