Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 252
248
arnir látnir hvíla á veeglægjunum sinn hvoru megin.
Alt þetta skal rammlega felt saman og skorðað sem bezt.
Er þá grindin búin.
ÞaJcið. Af þeim þökum sem hér eru kunn, þá eru
járnþökin þau langhentugustu þök á torfhúsum. Þegar
búið er að leggja grindina eins og áður er sagt, þá skulu
lagðir rimliir eða slár ofan á máttarslárnar, til þess að
festa járninu á. En þess skal vandlega gsétt að járni5
nái Ut yfir alla veggi. Á hlöðu eða önnur UtihUs, sem
vatnsgufa eða ylur kemst ekki í, mun járnþakið duga
einfalt. Én á önnur hUs dugar ekki járnið eitt. Það
má að sjálfsögðu fóðra þakið innan með við og stoppa
á milli eða tyrfa eins og víða tíðkast. En önnur leið
væri einfaldari, sem ekki væri ólíklegt að dygði. HUn er sú
að leggja torf utan á járnið, alveg eins og þegar tyrft
er yfir rafta í fjárhUsum. Torfið mundi gróa og halda
sér vel; hallinn er svo lítill. , Og það mundi verja hUsin
kulda ekki síður en hingað til hefir reynzt. Auk þess
væri ekki óhugsandi að nota mætti slétt járn undir slik
þök. Gæti járnið þá vel verið sem sUð í hUsunum svo-
ekki þyrfti að hyija þau innan, þótt þau væri höfð til
íbUðar. Það sem vér þurfum að fá vissu um í þessu
efni er það, hvort galvaníseringin endist vel á járninu
undir torflnu. Það vantar reynslu í þessu efni. Að vísu
höfum vér gert tilraun með þetta í iitlum stýl og hefir
ekkert sóð á járninu eftir eitt ár, en auðvitað verður
engin ályktun dregin af svo lítilli reynslu. En þessu
getur reynslan skorið Ur; en það eitt t.eijum vér mjög
líklegt, að bUa mætti járuþökin svo Ur garði á einhvern
liátt, að þau entust vel undir torflnu. Yæri því vert að
tilraunir væru gerðar í þessa átt. *
*) Á síðasta ársfundi Búnaðarfélagsins skýrði Yigfús Bcrg-
steinsson á Brúnum í liangárvallasýslu frá því, að liann hcfði
nýlega rifið hús, þar scm galvaniserað járn hefði vcrið undir torl'-
þaki; hús þetta liafði verið rakalaust lramhýsi, bygt fyrir 21 ári,
og var nú járnið, eftir þcnnan tíma alveg óskemt, er húsið var
rifið. iSama reynsla um 10—12 ár er víðar fcngin á lilöðum og
cnda fjósum. Aths. útg.