Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 254
250
á því, að búa um milli þaks og veggjar, þegar veggirnir
síga frá þakinu eins og títt er á gömlu húsunum. Þakið
fergir og veggina og heldur þeim föstum og þéttum.
8. 'Þakið sé heizt sem ílatast, þá tekur það minna
á sig og legst jafnara á veggina.
9. Að gluggar og dyru sé svo úr garði gerðar, að það-
í engu hindri sig veggjanna.
10. Aðefniðsé valið vel, helzt í mókendum flóknum
jarðvegi, helzt dálitið leirblöndnum. Hnaus úr siíkri jörð
fúnar seint vegna mósins, molnar lítið sökum rótarflók-
ans, en harðnar bezt sökum leirsins.
Sé alls þessa gætt, sem hér er talið, myndi að mestu
leyti komið i veg fyrir rakasemi, missig, frostskekkju,
grindarskekkju og gaila, sem stafa af bindingsleysi og
óvönduðu efni. Ættu þá húsin að verða nokkurnveginn
endingargóð og hagkvæm til allra afnota.
Yér höfum nú skýrt frá hugleiðingum vorum að
því er snertir húsagerðina aiment, en þá er eftir að
skýra frá því, hvernig koma megi reglum þessum að
við hinar ýmsu tegundir húsa. Þetta verður hægt að
framkvæma á svo margan hátt og með svo ýmsum
móti, alt eftir smekk manna og geðþótta, að eigi verður
hægt í stuttu máli að lýsa því. Sleppum vér þvi að
fara út í það mál frekar að sinni.
Vérþykjumst þess fullvissir að mönnum takist vand-
kvæðalaust að fylgja reglum þessum, þegar þeir reisa
fjárhús hlöður og önnur útihús. En verið getur að
mönnum þyki það örðugleikum bundið að reisa íbúðar-
hús eða baðstofur og beita þar öilum reglunum.
Baðstofur hyggjum vér vera hentast að reisa þannig
að hafa torfveggi á þrjá vegu, en timburhlið á einn veg
og fá birt.una aðallega þar inn um. Eigi verður gerlegt
að hafa loft í slíku húsi, en kjailara væri mjög hentugt
að hafa. Ef ekki dygði birtan frá timbuj hiiðinni, hyggj-
um vér að lánast gæti að hafa glugga á þakinu með