Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 255
251
góðum umbúnaði. Ef menn síður vildu hafa skáþök á
slíku húsi mætti hafa lágar sperrur, er hvíldu á bitum
þvert yfir tóttina, svo út af hallaði á báðar hliðar..
Líka mætti hafa tóttina tvíbreiða og hafa svo vegg í
henni miðri, hærri en hliðarveggina, og ieggja svo tré
af honum út á hliðarveggina, sem þakið hvíldi á. Yrðu
þá tóttirnar eiginlega tvær og timburhiið á þeim að-
framan.
Yér getum hugsað að mörgum þyki vandkvæði á
að þiija innan hús undir siíkum þökum, er hvíla á engri
undirgrind, en síga smámsaman með veggjunum. En
slikt verður auðgert á þann hátt að láta megin þiljanna
fylgja gólfinu, en efsta hluta þakinu, og hafa svo um
búið með tvöföldum „frisum" að þilin gætu gengíð á mis-
vixl, en búa það svo úr garði, að ekki súgaði með og
hægt væri að halda samskeytunum þétt saman eftir
vild, Þá þyrftu ekki þiljurnar í neinu að hindra sig
veggjanna. Væri með ýmsu móti hægt að nota þetta
þiijusnið á einfaldan hátt.
Eitt er það sem oss hefir komið til hugar, .viðvíkj-
andi svona löguðum baðstofum; það er að hægt verði
að fága svo torfveggina innan og prýða þá að eigi þurfi að
þilja þá innan. Hugsanlegt væri að takast mætti að
bera í þá bik og mála svo yfir með olíulit, eða þá að
kalka þá eða sementa og mála svo yflr. Og máske það
reyndist enn betur að prýða þá með veggjapappa. En
þotta gæti að hkindum ekki orðið fyr en voggirnir væru
vel signir. Yæri mikiil sparnaður að því, ef þetta tækist.
Ef reglum þeim, sem að framan eru taldar, væri
fylgt, myndi torfverkið verða talsvert dýrara í upphafi,
en hingað til hefir verið. En liinsvegar myndi viður geta
sparast að mun, og svo myndi endingin að líkindum
geta orðið svo miklu meiri og það væri mesti kostur-
inn. Væri líklegt að svo mætti vanda hús þessi vel,
að þau gætu staðið í nokkra mannsaldra.