Búnaðarrit - 01.01.1904, Side 261
257
Á loiðinni norður fann eg ýmsa málsmetandi menn
og ráðfærði mig við þá um baðanir í haust o. s. frv.
í september í haust, fór eg í tvær réttir, aðra í Eyja-
lirði, en hina í Þingeyjarsýslu til þess að skoða féð, er
það kom af afréttinum. En eigi varð eg í þessum ferð-
um var við neinn kláðavott.
Á ölium þessum ferðum mínum heflr mór verið
tekið hið besta, og för min greidd sem bezt mátti verða.
Það er afar-áríðandi, að öllum ráðstöfunum til út-
rýmingar fjárkláðanum sé fylgt í alla staði. Sé það eigi
gert, getur af þvi hlotist stórt tjón. Það er því þýðing-
armikið, að þess sé gætt, að ekki sleppi undan böðun
ein einasta kind. Komi það fyrir — og það heflr viljað
tii áður, þá skal þess vandlega gætt, að fara með slíkar
kindur, er þær finnast, eftir fyrirmælum reglugjörðarinnar
um kláðalækningar. Að öðrum kosti geta afleiðingarnar
orðið þær, að þessar kindur, ef þær hafa kiáða, sýki út
frá sér, og með því ónýti að meir eða minna leyti það,
sem búið er að gera í þessu efni, og væri það óbætan-
leg yflrsjón. Það er, með öðrum orðum, sama sem að
því fé, sem veitt er og varið er til útrýmingar kiáðan-
um, hefði verið í sjó kastað.
Frá Akureyri lagði eg af stað 24. okt. s. 1. og hélt
vestur í Skagafjörð. Kom þar á stað böðunum, og eins
í Húnavatnssýslu og tveim hreppum í Strandasýslu. —
En Sigurður Jónsson fyigdarmaður minn átti að sjá um
baðanir í öðrum hreppum Strandasýslu og suðurhiuta
ísafjarðarsýslu. En í norðurhluta þeirrar sýslu er Birni
Guðmundssyni frá Lóni ætlað að sjá um böðunina.
í Snæfeilsnes- og Hnappadalssýsium á Albert Krist-
jánsson á Páfastöðum að standa fyrir böðuninni, en í
Mýrasýslu Hallgrímur hreppstjóri Haligrímsson.
Að öðru leyti hefi eg sjálfur séð um baðanir í Dala-
sýslu og að nokkru leyti í Borgarfjarðar.
Tóbakið, sem fara átti í Borgarfjarðar- og Mýra-
sýslur, reyndist mjög skemt. Hafði það legið úti án
17