Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 272
268
ins yfir árið hagað þannig: Lambær eru ekki látnar út
íyr en kominn er nægilegur gróður á ræktuðu landi —
vorið 1904 var það 2. maí — ,og þeim beitt þar þangað
til nógur gróður er kominn í úthaga, sem var sama
vor 21. mai. Sem áður er getið, þá er úthaga skift í
þrent með girðingum; hús er i hverjum haga, svo féð
getur verið inni þá illviðri stendur yfir. Skelsandur og
tilbúinn áburður hefir verið borinn á sumstaðar í úthag-
anum. Það virðist hafa þau áhrif að slæmar beitijurtir
ganga til þurðar, t. d. þursaskegg, en betri koma í
þeirra stað. Við og við er brend sina, einir og beiti-
iyng, og við þessar aðgerðir batnar haglendið árlega.
Alt féð gengur í úthaganum yfir sumarið, að undanskild-
um nokkrum tvílembdum ám og hrútum, er ganga í
ræktuðu landi. Lömb eru vanalega tekin frá ánum um
miðjan ágúst; bæði er þá orðin lítil mjólk í þeim og
haglendið farið að rýrna. Þá er og vanalega mikill háar-
vöxtur á ræktuðu landi, og eru þau sett þar til beitar,
þangað til þau eru tekin á gjöf, og þá er þeim gefið
nýslegið haftagras í nokkra daga ásamt heyi, og síðan
næpur. Líkt er að farið möð ærnar. Með þessu móti
verður aldrei gífurlegur mismunur á fóðrun fjárins, sem
liefir sínar góðu afleiðingar.
Á haustin fer fram sala á öllu fé frá fjárbúinu;
þá fer og fram aðgreining fjárins. Auðvitað tekur
búið til sín beztu lömbin, þó ekki ætíð þau stærstu,
heldur af jafnri stærð og sem allra líkust, þau sem
íullnægja þeirri lýsingu, sem hér að framan er frá skýrt,
■en afbrigði frá hertni eru enn þá árlega þessi: Lítil
horn, einkum á hrútum, brúskur í enni og ioðnar aftur-
fætur, daufur svipur og slök eyrnastaða, gult andlit
hvítar nasir, slakur hryggur, hár herðakambur, náin
fótastaða, þunn ull og gróf og fleira. Það, sem selt er
frá búinu til kynbóta eða undaneldis, er selt við opin-
bert uppboð í Stafangri í lok septemberm. ár hvert.
Haustið 1903 voru seldar þar 162 kindur: